UNESCO: Samkomulag um þekkingarmiðstöð

0
680
Guðlaugur Þór Þórðarson og Audrey Azoulay forstjóri UNESCO
Guðlaugur Þór Þórðarson og Audrey Azoulay forstjóri UNESCO undirrita samkomulag um Þekkingarmiðstöð

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Audrey Azoulay, aðalframkvæmdastjóri Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna UNESCO, undirrituðu í gær samkomulag um að Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu starfi undir merkjum UNESCO sem sjálfstæð stofnun. Í miðstöðinni koma saman fjórir skólar sem starfræktir hafa verið á Íslandi.

GRÓ

Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu (e. International Centre for Capacity Development, Sustainability and Societal Change) er  einnig nefnd GRÓ. Hún verður fyrsta þverfaglega stofnun sinnar tegundar undir hatti UNESCO. Í miðstöðinni koma saman fjórir skólar sem hafa fram til þessa verið starfræktir sem skólar Háskóla Sameinuðu þjóðanna hér á landi. Þeir eru Jafnréttisskólinn, Jarðhitaskólinn, Landgræðsluskólinn og Sjávarútvegsskólinn. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Audrey Azoulay, aðalframkvæmdastjóri UNESCO, undirrituðu samkomulag þess efnis í höfuðstöðvum UNESCO í París. Skólarnir verða áfram fjármagnaðir af utanríkisráðuneytinu sem hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu.

„Með Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu leggjum við áfram okkar af mörkum á þeim sviðum sem Ísland hefur mikið fram að færa, þ.e. á sviðum jarðvarma, jafnréttis, sjávarútvegs og landgræðslu. Aukið samstarf Íslands og UNESCO býður upp á ýmsa möguleika og við hlökkum til að þróa það enn frekar. Um leið erum við stolt af því að geta haldið áfram að deila þekkingu okkar á þessum mikilvægu málefnum sem eru jafnframt í samræmi við megináherslur UNESCO,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

Hlutverk miðstöðvarinnar

Hlutverk Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu verður sem fyrr að styðja við getu þróunarríkja í Afríku, Asíu og Mið- og Suður-Ameríku á þeim fjórum sviðum sem starfsemin tekur til og auka þar með möguleika þeirra á að ná alþjóðlegum markmiðum sínum í samræmi við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Á hverju ári koma hópar sérfræðinga frá þróunarríkjum til nokkurra mánaða sérhæfðrar námsdvalar á Íslandi, auk þess sem haldin eru styttri námskeið í þróunarríkjum á vegum skólanna. Þar að auki gefst útskrifuðum nemendum frá öllum skólunum kostur á að sækja um styrki til meistara- eða doktorsnáms á Íslandi. Breytingunum er ætlað að styðja enn frekar við hlutverk skólanna en raska ekki grunnstarfsemi þeirra. Þeir munu áfram auka getu einstaklinga og stofnana í þróunarríkjum, hver á sínu sérsviði, og verða áfram hýstir í samstarfi við viðkomandi fagstofnanir, Orkustofnun, Hafrannsóknarstofnun, Landgræðsluna, Landbúnaðarháskólann og Háskóla Íslands.

(Frá utanríkisráðuneytinu)