UNRWA sakar Ísrael um hatursáróður

UNRWA, Palestínu-flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur fordæmt alheimsherferð Ísraels gegn stofnuninni. Nú síðast hafa birst auglýsingar þar sem stofnunin er sökuð um aðild að hryðjuverkum.

Ísrael hefur greitt fyrir auglýsingar til dæmis hjá Google, sem síðan eru birtar á netinu. Auk þess hefur verið greitt fyrir birtingar á skjám á opinberum vettangi í fjölmörgum borgum í heiminum. Ísrael hefur opinberlega hvatt til þess að UNRWA verði lögð niður.

Starfsmaður UNRWA heldur á barni.
Starfsmaður UNRWA heldur á barni. Mynd: UNRWA

„Þetta er síðasti liður í alheimsherferð aðildarríkis Sameinuðu þjóðanna þar sem stofnun á vegum þeirra er útmáluð sem hryðjuverkasamtök,” segir UNRWA í yfirlýsingu.

„Málflutningurinn kann að flokkast undir hatursáróður. Honum er komið á framfæri með því að nota fyrirtæki, sem alla jafna auglýsa neysluvörur.”

Nauðsyn á reglum

UNRWA eru stærstu mannúðarsamtök sem aðstoða íbúa Gasa, sem hafa orðið hart úti í hernaðaraðgerðum. Í yfirlýsingu sinni segir UNRWA að herferðin sé ekki aðeins atlaga að orðstír stofnunarinnar, heldur stofni lífi starfsmanna hennar í hættu.

UNRWA sér meðal annars um mennta- og heilbrigðiskerfi Palestínumanna.
UNRWA sér meðal annars um mennta- og heilbrigðiskerfi Palestínumanna. Mynd UNRWA

„Þeir sem bera ábyrgð á dreifingu rangra upplýsinga, þar á meðal auglýsingafyrirtæki, verða að hætta slíku og sæta ábyrgð. Setja ber reglur til að hafa heimil á dreifingu svo skaðlegra og hugsanlega hættulegra upplýsinga,“ segir í yfirlýsingu UNRWA.

251 starfsmaður UNRWA hefur verið verið drepinn frá því stríðið á Gasa blossaði upp. Tvær af hverjum þremur byggingum UNRWA hafa orðið fyrir árásum, margar oftar en einu sinni.

Sjá nánar um UNRWA til dæmis hér.

Fréttir