Alþjóðadagur mannaðra geimferða, sem haldinn er hátíðlegur árlega 12. apríl, er til minningar um fyrstu geimferð mannsins, sem sovéski geimfarinn Júrí Gagarín fór í árið 1961. Dagurinn var útnefndur af Sameinuðu þjóðunum árið 2011 og er haldinn hátíðlegur til að fagna upphafi geimaldar og stuðla að alþjóðlegu samstarfi um nýtingu geimsins í þágu friðar og sjálfbærrar þróunar.
Allsherjarþingið, lýsti því yfir að 12. apríl væri alþjóðadagur mannaðra geimferða „til að fagna árlega á alþjóðavettvangi upphafi geimaldar mannkyns, staðfesta mikilvægt framlag geimvísinda og -tækni til að ná markmiðum um sjálfbæra þróun og auka velferð ríkja og þjóða, auk þess að tryggja að ósk þeirra um að varðveita geiminn í friðsamlegum tilgangi verði að veruleika.“
Þann 12. apríl 1961 fór fyrsta mannaða geimferðin fram, en hana fór Júrí Gagarín, sovéskur ríkisborgari. Þessi sögulegi atburður ruddi brautina fyrir geimkönnun í þágu alls mannkyns.
Gullplata Voyager
Gullplötu Voyager var skotið út í geim árið 1977 með skilaboðum frá mannkyni til alheimsins – og áratugum síðar stendur hún sem áminning um að við erum öll tengd. Sameinuðu þjóðirnar sýna eftirmynd af gullplötunni í höfuðstöðvum sínum og eiga djúp tengsl við ferlið við gerð hennar. Nefnd á vegum NASA bað SÞ um að útvega efni til að setja á spilunarlistann og fyrstu orðin á plötunni sjálfri eru frá þáverandi aðalframkvæmdastjóra SÞ þar sem hann lýsir von um frið og vináttu við þá sem finna og spila hana.
Sameinuðu þjóðirnar og geimurinn
Allt frá upphafi geimaldar viðurkenndu Sameinuðu þjóðirnar að geimurinn bætti nýrri vídd við tilveru mannkyns. Sameinuðu þjóðirnar leitast stöðugt við að nýta einstaka kosti geimsins til hagsbóta fyrir allt mannkyn.
Allsherjarþingið viðurkenndi sameiginlega hagsmuni mannkyns í geimnum og í leit að svörum við því hvernig geimurinn getur gagnast íbúum jarðar, samþykkti það fyrstu ályktun sína sem tengist geimnum, ályktun 1348 (XIII) sem ber heitið „Spurningin um friðsamlega nýtingu geimsins“. Þann 10. október 1967 gekk „Magna Carta geimsins“ í gildi.
Í dag er Geimvísindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna (UNOOSA) sú skrifstofa Sameinuðu þjóðanna sem ber ábyrgð á að stuðla að alþjóðlegu samstarfi um friðsamlega nýtingu geimsins. UNOOSA þjónar sem skrifstofa einu nefndar allsherjarþingsins sem fæst eingöngu við alþjóðlegt samstarf um friðsamlega nýtingu geimsins: Nefnd Sameinuðu þjóðanna um friðsamlega nýtingu geimsins(COPUOS).
