8. október 2014. Baráttuhátíð í Hörpu á þriðjudaginn undir merkjum kynningarátaksins Sterkar stelpur – sterk samfélög var ungu fólki uppljómun og sannkölluð vitundarvakning að sögn kennara sem komu með nemendur sína í Silfurberg.
Alls mættu um 850 ungmenni á baráttuhátíðina en hún er hluti af yfirstandandi kynningarviku frjálsra félagasamtaka í alþjóðastarfi og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands undir yfirheitinu: Þróunarsamvinna ber ávöxt.
Þema vikunnar í ár eru unglingsstúlkur í þróunarríkjunum og veikri stöðu þeirra voru gerð góð skil á fundinum í Hörpu en jafnframt var fundurinn hvatning til ungs fólks um að láta sig jafnrétti kynjanna varða eða eins og Sigríður María Egilsdóttir sagði í lokaorðum sínum: „Þeir sem er nógu klikkaður til að halda að þeir geti breytt heiminum, eru þeir einu sem geta það.“
Fundurinn hófst með ávarpi Dags B. Eggertssonar borgarstjóra sem minnti unga fólkið á fátæktina á Íslandi fyrir tiltölulegum áratugum, merkilegu framlagi kvenna til uppbyggingar samfélagsins og hann hvatti unga fólkið, bæði stelpur og stráka, til að taka höndum saman og skapa betri heim.
Heiðursgestur baráttufundarins var Pernille Fenger framkvæmdastjóri Mannfjöldastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) á Norðurlöndum en hún hefur víða farið og talað máli unglingsstúlkna í þróunarlöndum. Hún gerði nauðungarhjónabönd að umtalsefni í erindi sínu en ræddi einnig margvíslegar menningarlegar og félagslegar hindranir sem brjóta gegn mannréttindum stúlkna og svipta þær bernsku sinni, menntun og draumum. Pernille kynnti í lok ræðu sinnar tíu mínútna heimildamynd: Of ung til að giftast, sem UNFPA lét gera fyrir nokkrum árum. Myndin lýsir hræðilegum örlögum ungra stúlkna sem neyddar eru í hjónabönd með rígfullorðnum körlum.
Erla Björg Gunnarsdóttir blaðamaður á Fréttablaðinu sagði sögu Mary Yanoi Soipe, Maasai stúlkunnar sem hún hitti í Næróbí í haust, en saga hennar var rakin í Fréttablaðinu um síðustu helgi. Ennfremur er viðtal í Heimsljósi – veftímariti um þróunarmál – við Þórunni Helgadóttur hjá ABC Barnahjálp í Kenía um stöðu unglingsstúlkna í samfélögum ættbálksins, þar sem saga Mary er meðal þess sem ber á góma.
Kynnar og sögumenn á baráttufundinum á þriðjudag voru frá Ungmennaráði Reykjavíkurborgar og leystu hlutverk sitt einstaklega vel af hendi, þau Hildur Fjalarsdóttir, Jessý Jónsdóttir, Kári Arnarsson, Margrét Sæmundsdóttir, Sara Þöll Finnbogadóttir og Þorsteinn Davíð Stefánsson.
Kynningarátakið hófst formlega síðastliðinn föstudag þegar Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar Alþingis tók fyrstu vatnsfötuáskorun átaksins. Hún gekk með tuttugu lítra vatnsfötu á höfði á Austurvelli að hætti afrískra stúlkna og sýndi þannig stuðning sinn með því að setja sig í spor þeirra. Hún skoraði á þrjár þjóðþekktar konur að fara að dæmi sínu, Björk Guðmundsdóttur tónlistarkonu, Birnu Einarsdóttur bankastjóra Íslandsbanka og Sigríði Björk Guðjónsdóttur lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu.
Stórtónleikar á föstudagskvöld í Iðnó
Einn af stærstu viðburðum átaksins verður í Iðnó á föstudagskvöld milli klukkan 20 og 22 en þar stíga á svið ungar íslenkar tónlistarkonur. Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við KÍTÓN, félag kvenna í tónlist. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Á tónleikunum koma fram Reykjavíkurdætur, Mammút, Young Karin, Himbrimi, Boogie Trouble, Una Stef, Alvia Islandia, Kælan Mikla, Soffía Björg og Laufey og Júnía, sigurvegarar Samfés.
Margar af þekktustu tónlistarkonum þjóðarinnar sameinuðust í myndbandi um túlkun á svonefndri stelpuyfirlýsingu sem samin var í tilefni af fyrsta alþjóðadegi stúlkubarnsins, 11. október 2012, en jafnframt til kynningar á tónleikunum í Iðnó.
Heimild: Þróunarsamvinnustofnun.

