A-Ö Efnisyfirlit

Venesúela: 27 lönd taka þátt í leit að eftirlifendum

Undanfarin fimm ár hefur WFP verið burðarásinn í mannúðaraðstoð í Venesúela, meðal annars með skólamáltíðum okkar. Mynd: WFP/Lorena Garcia
Undanfarin fimm ár hefur WFP verið burðarásinn í mannúðaraðstoð í Venesúela. Mynd: WFP/Lorena Garcia

Jarðskjálftar. Venesúela. Björgunarsveitir frá 27 löndum, með rúmlega 2 200 björgunarmönnum og 140 leitarhundum, vinna að því að finna fólk sem er fast undir rústum eftir jarðskjálftana í Venesúela í síðustu viku, með stuðningi og samhæfingu Sameinuðu þjóðanna.

„Á tímum þegar við einblínum alltaf á það slæma sem gerist í heiminum, þá er þetta merki um samstöðu frá öllum heimshornum til stuðnings Venesúelabúum,“ sagði Gianluca Rampolla, mannúðarfulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Venesúela.

Neyðarbirgðum er dreift til fólks sem varð fyrir áhrifum jarðskjálftans í Venesúela. Mynd: © WFP/Gustavo Vera
Neyðarbirgðum er dreift til fólks sem varð fyrir áhrifum jarðskjálftans í Venesúela. Mynd: © WFP/Gustavo Vera

Enn er 50 þúsund manns saknað í Venesúela eftir jarðskjálftana í síðustu viku. Skjálftarnir tveir, sem mældust 7,2 og 7,5 á Richter-kvarða, urðu að minnsta kosti 1 430 manns að bana og 3 238 slösuðust, samkvæmt nýjustu opinberu tölum. Yfirvöld halda áfram að meta tjónið og eftirskjálftar viðhalda óvissu á viðkomandi svæðum.

Um 680.000 börn eru meðal þeirra 1,8 milljóna manna sem þurfa á mannúðaraðstoð að halda í kjölfar jarðskjálftanna sem riðu yfir Venesúela 24. júní, samkvæmt skýrslu frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.

Skemmdir á sjúkrahúsum, skólum og vatnskerfum gera ástandið enn verra fyrir fjölskyldur á hamfarasvæðunum, en margar þeirra eru enn á vergangi. Nærri sjö milljónir Venesúelabúa gætu orðið fyrir skakkaföllum af völdum skjálftanna.

Á meðan björgunaraðgerðir halda áfram, áætlar Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNDP)  í bráðabirgðamati byggðu á gervihnattamyndum, að jarðskjálftarnir hafi valdið beinu eignatjóni upp á um 6,7 milljarða Bandaríkjadala, sem jafngildir um sex prósentum af vergri landsframleiðslu landsins.

Neyðarástand barna

Nýtt mat UNICEF endurspeglar neyðarástand sem nær langt út fyrir hrunin mannvirki. Fyrir hundruð þúsunda barna hefur jarðskjálftinn stefnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu, öruggu vatni, vernd og menntun í hættu.

„Sjúkrahús eru yfirfull, þúsundir barna hafa ekki öruggan aðgang að hreinu vatni og margir skólar hafa skemmst,“ sagði Manuel Rodríguez Pumarol, fulltrúi UNICEF í Venesúela.

Í höfuðborgarumdæminu benda bráðabirgðaupplýsingar til þess að 432 skólar hafi skemmst, meira en þriðjungur allra skóla. Sumir skólar sem eru enn öruggir eru notaðir sem tímabundið neyðarskýli fyrir fjölskyldur á flótta.

UNICEF hefur sent fleira starfsfólk og birgðir til að ná til um 650 þúsund manns, þar á meðal 234 þúsund barna, með stuðningi á sviði heilbrigðis, næringar, vatns og hreinlætis, barnaverndar og menntunar.

Fyrsta flug stofnunarinnar, með 20 tonn af lækningavörum og vatns- og hreinlætisbúnaði, kom til landsins á föstudag. Annarrar sendingar, frá alþjóðlegri birgðastöð UNICEF í Kaupmannahöfn, er von á næstu dögum.

Kerfi Sameinuðu þjóðanna er til staðar í La Guaira, svæðinu sem varð verst úti í tvöföldu jarðskjálftunum sem riðu yfir Venesúela. Mynd: SÞ
Kerfi Sameinuðu þjóðanna er til staðar í La Guaira, svæðinu sem varð verst úti í jarðskjálftunum sem riðu yfir Venesúela. Mynd: SÞ

Sjúkrahús á þolmörkum

Jarðskjálftinn hefur aukið álagið á heilbrigðiskerfið. Í La Guaira hafa Sameinuðu þjóðirnar sett upp þrjú vettvangssjúkrahús með gjörgæsludeildum, meðferðarherbergjum og áverkasvæðum til að auka aðgengi að þjónustu nær þeim samfélögum sem urðu fyrir áhrifum. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) styður einnig venesúelsk yfirvöld við mat á sjúkrahúsum, samhæfingu neyðarlæknateyma og sendingu lyfja, áverkagagna, vatns- og hreinlætisbirgða og annarra nauðsynja.

Matið bendir einnig til brýnnar þarfar fyrir geðheilbrigðisþjónustu og sál-félagslegan stuðning fyrir þá sem skjálftarnir snertu, fjölskyldur sem leita að týndum ættingjum, heilbrigðisstarfsfólk og viðbragðsaðila.

Jarðskjálftar auka á erfiðleika

Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) er á vettvangi í Venesúela og veitir flutningsaðstoð, matvæli og aðra aðstoð sem hluta af víðtækari mannúðaraðstoð.

„Eyðileggingin er allt í kring,“ segir Stephanie Hochstetter, landstjóri WFP, sem heimsótti La Guaira í Venesúela, sem varð fyrir jarðskjálfta. Mynd: WFP/Gustavo Vera
„Eyðileggingin er allt í kring,“ segir Stephanie Hochstetter, landstjóri WFP, sem heimsótti La Guaira í Venesúela, sem varð fyrir jarðskjálfta. Mynd: WFP/Gustavo Vera

„Eyðileggingin er allt í kring,“ segir Stephanie Hochstetter, landstjóri WFP í Venesúela, í samtali frá skjálftasvæðinu í La Guaira, sem er um 40 mínútna akstur norður af höfuðborginni Caracas. „Það eru þúsundir slasaðra og hundruð bygginga eyðilagðar eða mikið skemmdar,“ bætir hún við. „Fólk mun hafa mikla þörf fyrir mat.“

Teymi WFP undirbýr mannúðarviðbrögð WFP og getur aukið matvæla- og flutningsstuðning eftir þörfum. Með yfir 3 þúsund tonn af matvælum í landinu duga birgðir WFP til að fæða meira en 10 þúsund fjölskyldur í tvo mánuði.

Jarðskjálftarnir auka enn frekar á erfiðleika í landi sem glímir við margþættan vanda. Aðgangur að nægum mat er enn helsta áhyggjuefni 80% þjóðarinnar.

En þarfirnar eru gríðarlegar í landi sem stendur frammi fyrir fjölda áskorana – allt frá hæstu matvælaverðbólgu í heimi, yfir 500% á ári, til fjölda veðurhamfara á síðasta ári sem hafa stuðlað að verðhækkunum og hungri. Búist er við að áhrif jarðskjálftans á atvinnu, innviði og birgðakeðjur muni gera aðgang að matvælum ógerlegan fyrir þá viðkvæmustu – jafnvel á meðan landið býr sig undir afleiðingar El Niño á næstu mánuðum.

Til að styðja bágstadda í Venesúela sjá hér og hér.