A-Ö Efnisyfirlit

Venesúela: „hættulegt fordæmi“ segir Guterres

Caracas höfuðborg Venesúela.
Caracas höfuðborg Venesúela. Mynd: Wikimedia/Olga Berrios

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að sér sé mjög brugðið yfir stöðunni á milli Bandaríkjanna og Venesúela undanfarna mánuði sem náði hámarki á laugardag þegar bandarískar sérsveitir tóku Nicolás Maduro forseta og námu hann á brott.

Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti um aðgerðirnar á laugardagsmorgun. Dómsmálaráðherra landsins sagði að Maduro og eiginkona hans sem einnig var numin á brott myndu standa andspænis „ofsabræði bandarísks réttarkerfis á amerískri grundu.” Hann var ákærður fyrir fikniefna-hryðjuverk á fyrri stjórnarárum Trumps í New York.

Aðgerðir Bandaríkjanna hófust aðfararnótt laugardags í Caracas höfuðborg Venesúela og nágrenni. Ríkisstjórn Venesúela lýsti þegar yfir neyðarástandi. Spenna hefur magnast upp eftir að Bandaríkin hófu að ráðast á skip frá Venesúela, sem sögð voru stunda eiturlyfjasmygl. Þá hertók bandaríski flotinn oíuflutningaskip.

Nicolás Maduro forsteti Venesúela ávarpar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna 2018.
Nicolás Maduro forsteti Venesúela ávarpar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna 2018. Mynd: UN Photo/Cia Pak

Hættulegt fordæmi

„Aðalframkvæmdastjórinn hefur þungar áhyggjur af stigmögnuninni í Venesúela sem náði hámarki með hernaðaraðgerðum Bandaríkjanna. Þær gætu haft umtalsverðar afleiðingar í heimshlutanum,” sagði í yfirlýsing frá talsmanni aðalframkvæmdastjórans, Stéphane Dujarric.

„Burtséð frá ástandinu í Venesúela, kann þessi þróun að fela í sér hættulegt fordæmi. Aðalframkvæmdastjórinn leggur sem fyrr áherslu á mikilvægi þess að öllum beri að fylgja að fullu alþjóðalögum, þar á meðal sáttmála Sameinuðu þjóðanna,“ sagði í yfirlýsingunni. „Hann hefur þungar áhyggjur af því að alþjóðalög hafi ekki verið virt.“

Vernd Venesúelabúa

Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hvatti til stillingar og virðingu fyrir alþjóðalögum. „Vernd Venesúelabúa verður að vera í fyrirrúmi og leiðarljós í komandi aðgerðum.”

Venesúela hefur óskað eftir neyðarfundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og verður hann haldinn í dag mánudag 5.janúar um klukkan þrjú að íslenskum tíma.

Mannréttindabrot falli ekki í skuggann

Óháð alþjóðleg rannsóknarnefnd um Venesúela (Independent International Fact-Finding Mission) hefur lýst þungum áhyggjum af mannréttindaástandinu í kjölfar árásar Bandaríkjanna og handtöku Maduro forseta. Nefndin sem skipuð var af Mannréttindaráðinu, hvetur til þess að langvarandi mannréttindabrot fallli ekki í skuggann á síðustu atburðum.

Marta Valiñas formaður nefndarinnar segir að áfram beri að beina kastlljósi að „alvarlegum mannréttindabrotum og glæpum gegn mannúð” í garð Venesúelabúa óháð þeim ásökunum sem Bandaríkin nota til að réttlæta aðgerðir sínar.

Nefndin hefur áður greint frá mynstri afbrota, svo sem aftaka án dóms og laga, handahófskenndra frelsissviptinga, þvingaðra brotthvarfa, pyntinga og slæmrar meðferðar, auk kynferðislegs og kynbundins ofbeldis.

Sjá einnig: „Óháð rannsóknarnefnd segir eina alvarlegustu mannréttindakreppu síðari ár í Venesúela“, hér. og bakgrunn hér.