A-Ö Efnisyfirlit

Volker Türk: Við þurfum á nýrri Reykjavíkurstund að halda

Türk ávarpar Imagine Forum.
Türk ávarpar Imagine Forum.

Volker Türk, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að heimurinn geti dregið lærdóm af leiðtogafundi Reagans og Gorbatsjovs í Reykjavík árið 1986.

Í ræðu á Imagine Forum í Reykjavík tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins sagði hann: „Við þurfum á nýrri „Reykjavíkurstund“ að halda í dag.“

„Í sífellt brothættari og skautaðri heimi, þar sem sum ríki og leiðtogar eru reiðubúnir að beita gríðarlegu valdi til að ná markmiðum sínum, er enn yfirgnæfandi meirihluti fyrir fjölþjóðlegum lausnum á hnattrænum vandamálum,“ sagði Türk.

Mannréttindastjórinn hitti Höllu Tómasdóttur forseta Íslands að máli.
Mannréttindastjórinn hitti Höllu Tómasdóttur forseta Íslands að máli.

„Reykjavík minnir okkur á: Vandamál er hægt að leysa. Við þurfum að standa gegn frásögnum sem halda öðru fram.“

Gildið kom í ljós

Mannréttindastjórinn sagði að annars vegar hefðu viðræðurnar í Reykjavík árið 1986 mistekist þar sem leiðtogarnir náðu ekki samkomulagi um kjarnorkuafvopnun.

„En raunverulegt gildi fundarins kom í ljós með tímanum,“ sagði Türk. Leiðtogarnir „lögðu af stað á þá braut sem að lokum batt enda á kalda stríðið. Ef Gorbatsjov aðalritari og Reagan forseti gátu hjálpað til við að draga mannkynið til baka frá barmi hörmunga, þá getum við það líka.“

Mannréttindastjórinn benti á að ógnir við mannréttindi færu vaxandi og skæku undirstöður friðar, jafnréttis og sjálfbærni. Þar á meðal væri sú fjölþjóðlega umgjörð „sem við höfum byggt upp af mikilli natni í áratugi til að vinna að sameiginlegum markmiðum okkar“.

Enn fremur væru vaxandi átök, gífurlegur ójöfnuður, aukin mismunun, árásir á jafnrétti, hörmuleg ógn loftslagsbreytinga og hættur tengdar gervigreind allt gríðarlegar áskoranir.

Volker Türk mannréttindastjór með fulltrúm frjálsra félagasamtaka.
Volker Türk mannréttindastjór með fulltrúm frjálsra félagasamtaka.

Koma þarf böndum á gervigreind

„Upplýsingaóreiðuherferðir knúnar gervigreind grafa nú þegar undan samheldni samfélaga og reyna á lýðræðislegar stofnanir; og notkun gervigreindar í vopnakerfum er afar ugglvænleg. Við erum að leika okkur að eldinum. Okkar vegna og vegna komandi kynslóða þurfum við ábyrga stjórnsýsluumgjörð núna, til að ná tökum á þessari tækni áður en það verður um seinan,“ sagði Türk.

„Þessar áskoranir ógna lífi okkar, gildum okkar, framtíð okkar og þeim heimi sem við skiljum eftir handa afkomendum okkar. En Reykjavík, og bergmál fyrri viðræðna sem hér fóru fram, kenna okkur að þessi vandamál er hægt að leysa.“

Imagine fórum var helgað leiðtogafundi Reagans og Gorbatsjovs.
Imagine fórum var helgað leiðtogafundi Reagans og Gorbatsjovs.

Reykjavík vísaði veginn

„Reykjavík vísaði veginn,“ hélt mannréttindafulltrúinn áfram. „Nú er það skylda okkar að skapa rými þar sem uppbyggilegar raddir geta aukið virðingu fyrir mannréttindum – kjarnanum sem heldur samfélögum saman. Þetta er eina leiðin til að tryggja öryggi, sjálfbæra þróun fyrir alla og varanlegan frið – nú og fyrir komandi kynslóðir.“

Auk ávarpsins á Imagine Forum átti mannréttindastjórinn fundi með Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, auk þess að hitt fulltrúa almannasamtaka, þar á meðal Félags Sameinuðu þjóðanna.