A-Ö Efnisyfirlit

Vonast til að spenna spilli ekki Sýrlands-viðræðum

sýrland
11.janúar 2016. Sérstakur sendiboði Sameinuðu þjóðanna í málefnum Sýrlands segir að ráðamenn í Sádi Arabíu og Íran heiti því að spennan á milli ríkjanna muni ekki hafa neikvæð áhrif á friðarviðræður í Sýrlandi.

Þær viðræður eiga að hefjast 25.janúar næstkomandi í Genf og er talið að þessi tvö ríki hafi þýðingarmiklu hlutverki að gegna. Sendiboði aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Staffan de Mistura hefur undanfarna daga ferðast um þennan heimshluta og rætt við ráðamenn.

Hann kom fram á blaðamannafundi í Teheran, höfðuborg Írans, þar sem hann sagði meðal annars að hann hefði verið fullvissaður um að friðarvilji hefði ekki dvínað vegna spennunnar í kjölfar aftakna í Sádi-Arabíu sem Íranar hafa mótmælt harðlega.
„Ég var fullvissaður um þetta í viðræðum mínum í Riyadh og það var mér og aðalframkvæmdastóranum léttir. Sama máli gegnir um samtöl mín í Teheran.“

De Mistura hefur rætt við ráðamenn um útfærslu samþykktar Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem felur í sér að komið verði á vopnahléi í Sýrlandi, ný stjórnarskrá verði sett og að boðið verði til kosninga í umsjá Sameinuðu þjóðanna.