A-Ö Efnisyfirlit

Vonir glæðast í Sýrlands-deilunni

Homs in ruins

Homs in ruins
11.nóvember 2015. Sáttasemjari Sameinuðu þjóðanna hefur fagnað nýjum tilraunum til að stilla til friðar í Sýrlandi.

Sautján ríki og Evrópusambandið standa að baki viðræðum í Vínarborg um næstu helgi.

„Fyrir nokkrum mánuðum hefði verið óhugsandi að Rússar, Bandaríkjamenn, Sádi Arabar og Íranir settust niður við sama borð,“ segir Staffan de Mistura, sérstakur erindreki aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um málefni Sýrlands.

Staffan 2Mistura segir að viðræðurnar séu ekki á vegum Sameinuðu þjóðanna en njóti stuðnings þeirra; Bandaríkin og Rússlands stýra þeim í sameiningu. „Við höfum reynt árangurslaust að finna lausn í fjögur ár og það hefur ekki gengið. Nú taka einstök ríki við keflinu og takast á við þessar áskoranir,“ sagði de Mistura.

Hann sagði að Sameinuðu þjóðirnar gætu sætt sig við hvaða ákvarðanir sem fundurinn tæki og myndu síðan halda friðarferlinu áfram.
„Það eru ákveðin teikn á lofti um að mönnum sé alvara að takast á við þau málefni sem við er að glíma.“ Hann lagði áherslu að ekki mætti glutra niður tækifæri sem skapast við það að þessi ríki ræðist við í Vínarborg. „Þetta er augnablik af því tagi sem við höfum beðið eftir og frumkvæðið nýtur fulls stuðnings okkar.“

Mynd: Stríðsskaði í borginni Homs í Sýrlandi