A-Ö Efnisyfirlit

Ṣālih tekur við af Grandi sem flóttamannastjóri

Secretary-General António Guterres (left) meets with Barham Salih, then President of the Republic of Iraq.
António Guterres Barham Salih, þá forseta Íraks. Mynd: UN Photo/Ahmed Gaaloul

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur skipað Barham Ahmed Ṣālih forstjóra Flóttamannahjálpar stofnunarinnar (UNHCR).

Þingið samþykkti tillögu aðalframkvæmdastjórans um skipan Ṣālih með lófataki.

Skipunartími hans er frá 1.janúar 2026 til 31.desember 2030 eða í fimm ár.

Filippo Grandi, flóttamannastjóri SÞ

Filippo Grandi, flóttamannastjóri SÞ

Barham Ṣālih var forseti Íraks frá 2018 til 2022. Hann er fyrrverandi forsætisráðherra Kúrda-héraðsins í Írak og var að auki varaforsætisráðherra Íraks.

Ṣālih tekur við starfinu af Ítalanum Filippo Grandi, sem lætur af störfum um áramót eftir tíu ára forystu hjá UNHCR.