Þvinguð vinna og þvinguð hjónabönd hafa aukist umtalsvert á undanförnum fimm árum. Tíu milljónir manna bættust í hóp nútíma þræla á síðustu fimm árum. 2.desember er Alþjóðlegur dagur afnáms þræhalds.
Þótt þrælahald sé ekki skilgreint í lögum, nær hugtakið yfir ýmiss konar verknað á borð við þvingunarvinnu, þvinguð hjónabönd og mansal. Í stuttu máli snýst það um að manneskja geti ekki neitað eða farið vegna hótana, ofbeldis, þvingana, blekkinga og/eða misbeitingar valds.
Nútímaþrælahald þrífst í hverju einasta ríki heims, þvert á kynþætti, menningu og trúarbrögð. Rúmlega helmingur (52%) allrar þvingaðrar vinnu og fjórðungur þvingaðra hjónabanda á sér stað í efri milltekju- og hátekjuríkjum.
Alþjóða vinnumálastofnunin (International Labour Organisation (ILO)) hefur samþykkt lagalega bindandi ályktun um aðgerðir til að útrýma þvingaðri vinnu. Gekk hún í gildi 2016.
Þvinguð vinna ábatasöm
Talið er að tekjur af þvingaðri vinnu í heiminum nemi 236 milljörðum Bandaríkjadala á ári. Þennan gróða má rekja til launa sem stolið hefur verið frá starfsfólki, oft og tíðum fólki sem þegar barst í bökkum við að brauðfæða fjölskyldur sínar.
Þegar um farandstarfsfólk er að ræða þýðir það einnig að minna er til skiptanna handa fólkinu heima. Ekki má heldur gleyma að ríkisstjórnir missa af skattfé vegna slíkrar ólöglegrar starfsemi. Au þess gefur slíkt undan réttarríki og er vatn á myllu skipulagðrar glæpastarfsemi.

Helstu form nútímaþrælahalds
Þrælahald hefur tekið á sig ýmsar myndir í aldanna rás. Sums staðar þrífst þrælahald enn með gamla laginu, en nýjar tegundir hafa einnig skotið upp kollinum.
Þvinguð vinna
Enn tíðkast að fólk sé svipt frelsi vegna skulda og látið vinna upp í þær. Farandfólk, sem sætt hefur mansali er í sívaxandi mæli hneppt í þrældóm. Dæmi um slíkt má finna í störfum á heimilum, í byggingariðnaði, textíliðnaði, landbúnaði og þvinguðu vændi.
Barnavinna
Tíunda hvert barn í heiminum stundar vinnu. Flest þeirra sæta efnahagslegri misnotkun, en það stríðir gegn Barnasáttála Sameinuðu þjóðanna. Í honum er réttur barns til lífs án efnahagslegrar misnotkunar virtur.
Mansal
Mansal er samkvæmt alþjóðlega mansals-sáttmálanum þegar fólk er þvingað með hótunum eða valdi til flutninga á brott, með það að markmiði að láta það sæta efnahagslegri misnotkun. Þetta felur meðal annars í sér vændi eða kynferðislega misnotkun, þvingaða vinnu eða þjónustu, þrældóm eða brottnám líffæra.
Alþjóðlegur dagur afnáms þræhalds. Vissir þú?
- Um 50 milljónir manna hafa verið hnepptar í nútímaþrældóm. 28 milljónir eru þvingaðar til vinnu og 22 milljónir þvingaðar í hjónabönd.
- Um það áttundi hver í þvingaðri vinnu er á barnsaldri. Rúmur helmingur þessara barna sæta kynferðislegri misnotkun í gróðaskyni.
- Algengast er (86%) að þvinguð vinna eigi sér stað í einkageiranum.
- Fjórir af hverjum sem þvingaðir eru til kynferðislegar misnotkunar eru stúlkur og konur.
