A-Ö Efnisyfirlit

1400 Palestínumenn hafa verið drepnir í bið eftir mat

Meir en 50 þúsund börn hafa verið drepin eða særð í átökunum á Gasa
Meir en 50 þúsund börn hafa verið drepin eða særð í átökunum á Gasa. Mynd: UNICEF

 Mannúðaraðstoð. Ísraelsmenn hafa haldið áfram árásum nærri flutningaleiðum hjálpargagna og dreifingarstöðum matvæla þrátt fyrir yfirlýsingu um hlé á átökum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Palestínu (OHCHR). 

105 voru þannig drepnir frá 30.til 31.júlí og ekki færri en 680 særðir. Mannfallið varð á flutningaleiðum á Zikim-svæðinu í norðurhluta Gasa,, Khan Younis í suðrinu og nágrenni stöðva svokallaðrar Mannúðarstofnunar Gasa eða GHF, sem dreifir matvælum með stuðningi Ísraelshers.

Konur bíða eftir úthlutun matar í Gasaborg
Konur bíða eftir úthlutun matar í Gasaborg. Mynd: UN News (úr safni)

Engin ógnun við öryggissveitir

Frá 27.maí hafa hátt í 1400 Palestínumenn verið drepnir við að leita sér matar, 859 við drifingarstöðvar GHF, 514 á leið flutningabíla.

Ísraelsher var að verki í flestum manndrápanna, að sögn OHCHR en fleiri vígasveitir eru virkar á þessum slóðum.

„Skrifstofan hefur engar upplýsingar um að þessir Palestínumenn hafi með nokkru móti verið beinir þátttakendur í átökum eða verið neins konar ógnun við ísraelskar öryggissveitir eða einstaklinga. Hver manneskja sem hefur dáið eða særst hafði verið að berjast ekki aðeins fyrir lífi sínu, heldur fjölskyldu sinnar,“ segir í yfirlýsingu Mannréttindaskrifstofunnar.

Ungur drengur bíður eftir mat.
Ungur drengur bíður eftir mat. Mynd: UN News

Stríðsglæpir

Skrifstofan leggur áherslu á að það feli í sér stríðsglæpi að ráðast vísvitandi á óbreytta borgara og svelta þá og hindra mannúðaraðstoð.

„Ef um er að ræða kerfisbundna eða umfangsmiklar árásir á óbreytta borgara, kunna hér að vera á ferðinni glæpir gegn mannúð,“ sagði Mannréttindaskrifstofan.

„Rannsaka ber hvert þessara manndrápa í kjölinn og af óháðum aðilum. Draga ber hina seku til ábyrgðar.“

Hjálp úr lofti óskilvirk

Á sama tíma hvatti Palestínu-flóttamannahjálpin   (UNRWA) til að landamærastöðvar yrðu opnaðar fyrir umfangsmikinn flutning hjálpargagna til alls Gasasvæðisins.

„Það kostar 100 sinnum meira að flytja mannúðaraðstoð flugleiðina en flytja hana með flutningabílum. Þeir geta borið tvisvar sinnum meiri aðstoð en fluvélar,“ skrifaði Philippe Lazzarini forstjóri UNRWA á samfélagsmiðla.