A-Ö Efnisyfirlit

Gasa: UNICEF harmar dráp sjö barna  

Börn sækja vatn á Gasasvæðinu
Börn sækja vatn á Gasasvæðinu. Mynd: UN News.

Forstjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF hefur hvatt Ísrael til að endurskoða reglur um beitingu valds á Gasa eftir að sjö börn voru drepin þar sem þau sóttu drykkjarvatn.

Atvikið átti sér stað á miðju Gasa-svæðinu á sunnudag. Fjórir aðrir létust í árás Ísraels úr lofti.

Ísraelsher segist hafa ætlað að drepa hryðjuverkamann en vegna „tæknilegra mistaka“ hafi sprengjur geigað.

Konur og börn bíða eftir brauði í Khan Younis á meðan Sameinuðu þjóðirnar sáu um dreifingu
Konur og börn bíða eftir brauði í Khan Younis á meðan Sameinuðu þjóðirnar sáu um dreifingu.Mynd: UNRWA/Ashraf Amra

Vernd barna skuli tryggð

UNICEF-forstjórinn Catherine Russell benti á að þetta hafi gerst örfáum dögum eftir að konur og börn voru drepin, þar sem þau biðu í röð eftir fæðubótarefnum.

„Ísraelsk yfirvöld verða þegar í stað að endurskoða reglur um beitingu valds og tryggja að farið sé eftir alþjóðlegum mannúðarlögum, þar á meðal með tilliti til verndar almennra borgarar, þar á meðal barna, skrifaði hún á X.  

Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað harmað dráp Palestínumanna, sem sækja mat. Sérfræðingar í matvælaöryggi hafa varað við að allir íbúar Gasasvæðisins, 2.1 milljón, fái ekki nægilega fæðu.

Hungursneyð vofir enn yfir að mati UNICEF. Í júnímánuði einum voru 5800 börn greind sem vannærð. Eitt þúsund þeirra teljast þjást af brýnni vannæringu, og er það fjórði mánuðurinn í röð, sem fjölgun hefur orðið.

Eitt fjölmargra vandamála á Gasasvæðinu er að sorp hrannast upp.
Eitt fjölmargra vandamála á Gasasvæðinu er að sorp hrannast upp. Mynd: UNRWA

Næg matvæli til

Á sama tíma eru skemmur sneisafullar af matvælum rétt utan Gasasvæðisins, að sögn Palestínuflóttamannahjálparinnar á X.

UNRWA hvetur til þess að hætt verði að svelta íbúana, og herkvínni verði aflétt

„Leyfum Sameinuðu þjóðunum, þar á meðal UNRWA, að sinna starfi sínu við að bjarga mannslífum.”

Almannasamtök hafa hvatt til þess að banvænni matvæladreifingu Ísraela verði hætt og Sameinuðu þjóðirnar taki við að nýju.