2021: Ár ávaxta, heilbrigðisstarfsmanna og baráttu gegn barnavinnu

0
844
Alþjóðlegt ár ávaxta og grænmetis
Mynd: Brad Switzer on Unsplash

Árið 2021 er ár Friðar og trausts, skapandi hagkerfis, heilbrigðis- og umönnunarstarfsfólks, ávaxta og grænmetis og útrýmingar barnavinnu á vettvangi hinna ýmsu stofnana Sameinuðu þjóðanna.

Frá árin 1959 hafa Sameinuðu þjóðirnar helgað ár og jafnvel áratugi tilteknum málefnum. Þetta er gert til að vekja athygli á þjóðþrifamálum og hvetja til alþjóðlegra aðgerða.

Fórnfýsi verðlaunuð

Alþjóðlegt ár heilbrigðisstarfsmanna
Mynd: National cancer institute Unsplash

Óneitanlega er viðeigandi að heiðra starfsfólk í heilbrigðis- og umönnunargeiranum með því að helga þeim árið 2021. Alþjóða heilbrigðismálaþingið ákvað á síðasta ári að gera það sem viðurkenningu við fórnfýsi starfsfólks í þessum geirum fremst í víglínunni í COVID-19 faraldrinum.

Hins vegar er þetta ekki eina alþjóðlega árið á vegum Sameinuðu þjóðanna. FAO, Matvæla og landbúnaðarstofnun samtakanna hefur lýst 2021 Alþjóðlegt ár ávaxta og grænmetis. Markmiði era ð vekja athygli á því hve  ávextir og grænmeti eru næringarríki og neysla þeirra heilsusamleg.

Jafnframt er skorin upp herör gegn sóun og tapi á ávöxtum og grænmeti í fæðukerfinu.

Barnavinna

Barnavinna
Mynd Zeyn Afuang /Unsplash

Þá mun Alþjóða vinnumálastofnunin, ILO, beina kastljósinu að barnavinnu á Alþjóðlegur ári upprætingar barnavinnu 2021. Sérstaklega er vakin athygli á þvi að COVID-19 faraldurinn muni ýta enn fleiri börnum á vinnumarkaðinn.

2021 er einnig:

Venjulega eru það eitt eða fleiri aðildarríki Sameinuðu þjóðanna sem leggja til að helga tiltekið ár ákveðnu málefni. Tillaga er síðan lögð fram á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Á hinn bóginn getur slíkt gerst á vettvangi einstakra stofnana á vegum samtkanna.

Áratugir

Áratugur hafrannsókna
Mynd: Joel Filipe/Unsplash

Eftirfarandi áratugir helgaðir málefnum hefjast 2021 og lýkur 2030: