A-Ö Efnisyfirlit

2024 var banvænt ár fyrir mannúðarstarfsmenn og skjólstæðinga þeirra

Konur matreiða í Buhumba heilsugæslustöðinni í Norður-Kivu í Lýðveldinu Kongó.Mynd: OCHA/Francis Mweze
Konur matreiða í Buhumba heilsugæslustöðinni í Norður-Kivu í Lýðveldinu Kongó.Mynd: OCHA/Francis Mweze

Mannúðarmál. Samræmingaskrifstofa mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum. OCHA.

Aldrei hafa jafn margir mannúðarstarfsmenn látist við störf sín og árið 2024. Þetta kemur fram í ársskýrslu OCHA, Samræmingarskrifstofu mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum.  377 létust, flestir á Gasasvæðinu.

En það sem enn verra er, þá var síðastliðið ár hreinasta hörmungarár hjá milljónum manna. Átök og órói einkenndi staði á borð við Haiti, Líbanon, hertækin svæði í Palestínu, Súdan og Úkraínu og brothætt samfélög urðu víða  sundrungu að bráð.

Loftslagskreppan hefur síðan verið olía á eldinn. Flóð og þurrkar, fellibylir og hitabylgjur hafa herjað á fólk víða um heim.

Mannúðarmál. Starfsmaður OCHA, Jane Kiiru, ræðir við Pauline Lekuroiya, stofnandi kvennaþorpsins Umoja. Þar búa 30 konur sem sætt hafa kynbundnu ofbeldi í Kenía. Mynd: OCHA/Joy Maingi
Starfsmaður OCHA, Jane Kiiru, ræðir við Pauline Lekuroiya, stofnandi kvennaþorpsins Umoja. Þar búa 30 konur sem sætt hafa kynbundnu ofbeldi í Kenía. Mynd: OCHA/Joy Maingi

Grimmilegur niðurskurður  

„Dauði mannúðarstarfsmanna vekur ógn og skelfingu í hjálparstarfi,“ skrifar Tom Fletcher framkvæmdastjóri mannúðarmála og neyðarhjálpar hjá Sameinuðu þjóðunum í formála skýrslunnar. „Það ber að gera reikningsskil og draga hina seku til ábyrgðar í þágu hinna látnu og arftaka þeirra.“

Þrátt fyrir miklar áskoranir og þökk sé rausnarlegum framlögum tókst OCHA að koma lífsnauðsynlegri aðstoð til 116 milljóna manna í 33 ríkjum í náinni samvinnu við stofnanir Sameinuðu þjóðanna og meir en tvö þúsund samstarfsaðila.

Tom Fletcher yfirmaður OCHA.
Mannúðarmál: Tom Fletcher yfirmaður OCHA. Mynd: OCHA/Paolo Palmero.

Fletcher varar við því að ekki sé bjart framundan. „Grimmilegur niðurskurður mun koma hart niður á okkur, en við vinnum hörðum höndum að því að aðlaga kerfið að þessum nýja veruleika.“

Hvað er OCHA?

Hlutverk OCHA, Samræmingarskrifstofu mannúðarmála, er að fylkja liði allra þeirra sem vinna að mannúðarmálum til þess að tryggja að viðbrögð við neyðarástandi séu heildstæð. Jafnframt ber OCHA að tryggja að búið sé til rammaáætlun til þess að hver og ein samtök eða stofnun geti lagt sitt af mörkum í þágu heildarverkefnisins.

Sjá skýrsluna í heild hér.