A-Ö Efnisyfirlit

3 ár frá allsherjar innrás Rússa í Úkraínu:  „Nú er nóg komið“

Kona í húsarústum í bænum Pokrovsk í Donetsk-héraði í Úkraínu. Mynd: OCHA
Kona í húsarústum í bænum Pokrovsk í Donetsk-héraði í Úkraínu. Mynd: OCHA

Allsherjar innrás Rússa í Úkraínu.

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvetur til friðar í Úkraínu en þrjú ár eru nú liðin frá allsherjar innrás Rússa í Úkraínu. Hann segir innrásina hafa verið „skýrt brot á stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalögum.”

„Af þessu sorglega tilefni ítreka ég brýna þörf á réttlátum, varanlegum og heildstæðum friði, sem taki tillit til fullveldis Úkraínu, sjálfstæði og friðhelgis yfirráðasvæðis í samræmi við stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna, alþjóðalaga og ályktana Allsherjarþingsins,“ sagði Guterres í yfirlýsingu.

© UNOCHA/Alina Basiuk
Starfsmenn Sameinuðu þjóðunum hlúa að fólki í Odesa. Mynd:© UNOCHA/Alina Basiuk

Sameinuðu þjóðirnar hafa staðfest dráp 12 654 almennra borgara frá allsherjarinnrás Rússa 24.febrúar 20220. Nærri 30 þúsund hafa særst. 84% látinna og særðra hafa verið á yfirráðasvæði Úkraínustjórnar en 16% á hernumdum svæðum Rússlands.

6.3 milljónir Úkraínumanna hafa orðið að flýja land og 3.7 milljónir lent á vergangi innanlands. Alls eru þetta tíu milljónir eða fjórðungur Úkraínubúa fyrir stríð, en þeir eru um 40 milljónir.

Milana, sjö ára, flúið með fjölskyldu sinni frá Myrnohrad í Donetsk héraði. Mynd: UNICEF/Oleksii Filippov
Milana, sjö ára, flúið með fjölskyldu sinni frá Myrnohrad í Donetsk héraði. Mynd: UNICEF/Oleksii Filippov

30% auking manntjóns frá 2023

Að sögn Samræmingarskrifstofu mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðnum (OCHA) varð 30% aukning manntjóns á meðal óbreyttra borgara árið 2024 miðað við 2023.

„Ástand mannúðarmála hefur versnað sérstaklega nærri víglínunni,“ sagði OCHA í yfirliti. Þar kemur fram að 36% íbúanna eða 12.7 milljónir þurfa á mannúðaraðstoð að halda í ár.

„Við komum fólki til hjálpar með nauðsynjavörum en einnig reiðufé.“

Hjálpargögn frá UNICEF berast til þorpsins Shevchenkove í Kharkiv-héraði. Mynd: UNOCHA/Yurii Veres
Hjálpargögn frá UNICEF berast til þorpsins Shevchenkove í Kharkiv-héraði. Mynd: UNOCHA/Yurii Veres

„Aðgangur kvenna að heilsugæslu, orku og menntakerfi hefur verið skertur, og helmingur frumheilsugæslu hefur skemmst eða verið eyðilagður,“ segir Sofia Calltorp hjá Jafnréttisstonfun Sameinuðu þjóðanna (UN Women) um áhrif stríðsins á konur.

„Sameinuðu þjóðirnar hafa staðfest 398 tilfelli kynferðisofbeldis af hálfu rússneskra sveita.”

Fjárskortur

Ákvörðun Bandaríkjastjórnar að stöðva, að minnsta kosti tímabundið, fjárveitingar koma niður á mannúðarstarfi í Úkraínu. Matthias Schmale yfirmaður mannúðaraðstoðar Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu segist vonast til að fjárveitingar Bandaríkjanna hefjist að nýju. „Síðasta ár námu þær 30% af kostnaði við mannúðaraðstoð og 10% við þróunarstarf.“

António Guterres í heimsókn í Úkraínu í apríl 2022.
António Guterres í heimsókn í Úkraínu í apríl 2022. Mynd: UN Photo/Eskinder Debebe

Aðalframkvæmdastjórinn sagði í yfirlýsingu sinni á afmælinu að stríðið í Úkraínu væri alvarleg ógn, ekki aðeins við frið og öryggi í Evrópu, heldur græfi það undan grunnstoðum og helstu hugsjónum Sameinuðu þjóðanna.

„Nú er nóg komið,“ sagði Guterres. „Eftir þriggja ára dauða og tortímingu, hvet ég enn einu sinni til þess að dregið verði úr spennu og átökum hætt tafarlaust. Ég fagna allri viðleitni til að koma á réttlátum friði með fullri þátttöku. Sameinuðu þjóðirnar eru reiðubúnar til að styðja slíka viðleitni.“