A-Ö Efnisyfirlit

USAID: Næstum helmingur mannúðaraðstoðar að veði

Mannúðaraðstoð frá USAID í Monroviu í Líberíu.
Mannúðaraðstoð frá USAID í Monroviu í Líberíu. Mynd: Ari Gaitanis/UN

Mannnúðaraðstoð. USAID

Stofnanir Sameinuðu þjóðanna segja að niðurskurður framlaga Bandaríkjanna til mannúðaraðstoðar í heiminum muni hafa alvarlegar afleiðingar. Þær skora á hina nýju Bandaríkjastjórn að hvika ekki frá forystuhlutverki landsins í mannúðaraðstoð í heiminum.

Að sögn Samræningarskrifstofu mannúðaraðstoðar hjá Sameinuðu þjóðunum (OCHA) stendur Bandaríkjastjórn straum af 47% þess sem safnast þegar farið er fram á framlög til mannúðaraðstoðar.

Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna á Allsherjarþinginu í fyrri forsetatíð sinni
Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna á Allsherjarþinginu í fyrri forsetatíð sinni. Mynd: UN Photo: Cia Pak

Ný Bandaríkjastjórn hefur nú sett bandarísku þróunarsamvinnustofnunina USAID undir beina stjórn utanríkisráðherrans. Starfsfólk hefur verið sent heim og nýstofnuð skilvirknideild stjórnarinnar sakar USAID um glæpastarfsemi og skort á reikningsskilum.

„Opinberar ávirðingar bjarga engum mannslífum,” sagði Jens Lærke talsmaður OCHA.

Nærri öll aðstoð stöðvuð

Nærri öll aðstoð Bandaríkjanna við erlend ríki og stofnanir hefur verið stöðvuð á meðan þriggja mánaða yfirferð stendur yfir. Að auki tilkynnti Bandaríkjastjórn úrsögn Bandaríkjanna úr UNRWA, Palestínu-flóttamannahjálpinni og Mannréttindaráðinu, þó svo Bandaríkin eigi raunar ekki sæti í ráðinu. Aðild að UNESCO og framlög er stöðvuð á meðan úttekt stendur yfir. Áður hafði Trump forseti tilkynnt um úrsögn úr WHO, Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni og Parísar-samningum um viðnám við loftslagsbreytingum.

USAID í Líberíu.
USAID í Líberíu. Mynd: WIkimedia Commons

Sameinuðu þjóðirnar standi vaktina

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna skrifaði starfsmönnum bréf þar sem hann skorar á þá að tryggja að „þýðingarmikið þróunar- og mannúðarstarf haldi áfram,” þrátt fyrir ákvarðanir Trumps.

Guterres sagði að samtökin myndu meta og milda áhrif ákvarðananna.

„Starf Sameinuðu þjóðanna er mikilvægara en nokkru sinni fyrr….Við munum í sameiningu tryggja að samtök okkar haldi hiklaust áfram að þjóna bágstöddu fólki um allan heim.”