A-Ö Efnisyfirlit

Afganistan: konur mæta sífellt fleiri hindrunum

Konur læra og skrifa þökk sé frumkvæði sem nýtur aðstoðar Sameinuðu þjóðanna í Nuristan héraði í austurhluta Afganistans
Konur læra og skrifa þökk sé frumkvæði sem nýtur aðstoðar Sameinuðu þjóðanna í Nuristan héraði í austurhluta Afganistans.© UN Women/Sayed Habib Bidell

Konur. Afganistan.Talibanar. Fjórum árum eftir valdatöku Talibana í ágúst 2021 hafa réttindi kvenna enn verið skert í Afganistan. Afganistan er eina landið í heiminum þar sem stúlkum er bannað að sækja framhaldsskóla og nú eru nýjar takmarkanir á konum sem starfa fyrir Sameinuðu þjóðirnar.

Bann Talibana við því að konur vinni fyrir frjáls félagasamtök – sem tilkynnt var fyrir næstum þremur árum – heldur áfram að hafa skelfileg áhrif, að sögn UN Women, Jafnréttisstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Meira en helmingur frjálsra félagasamtaka í Afganistan hafa greint frá því að þetta geri þeim erfitt fyrir veita konum og stúlkum mikilvæga þjónustu. Könnun UN Women sem gerð var í júlí og ágúst leiddi í ljós að 97 prósent afganskra kvenna sögðu að þær hefðu liðið fyrir þetta.

Konur halda úr útlegði í Pakistan til Afganistan. Mynd:© UN Women/Sayed Habib Bidell
Konur halda úr útlegð í Pakistan til Afganistan. Mynd:© UN Women/Sayed Habib Bidell

Kemur niður á aðstoð við fórnarlömb jarðskjálfta

Sameinuðu þjóðirnar í Afganistan höfðu áður hvatt yfirvöld Talibana til að aflétta takmörkunum sem banna kvenkyns starfsfólki að koma inn á starfsstöðvar þeirra. Þessar aðgerðir eru að stofna lífsnauðsynlegri mannúðaraðstoð og annari nauðsynlegri þjónustu fyrir hundruð þúsunda manna í hættu. Þetta á ekki síst við um þá sem urðu fyrir barðinu á mannskæðum jarðskjálfta nýverið að því er fram kemur í yfirlýsingu frá hjálparstarfssveit Sameinuðu þjóðanna í Afganistan (UNAMA).

Engir skólar, engin vinna fyrir frjáls félagasamtök

Síðan Talíbanar komu aftur til valda fyrir fjórum árum hafa þeir gefið út fjölmargar tilskipanir sem skerða réttindi kvenna. Sérstaklega má nefna bann við að stúlkur sæki framhaldsskóla og að þær sinni flestum störfum, þar á meðal fyrir frjáls félagasamtök.

Fyrir um fjórum árum í Afganistan, í ágúst 2021, hófu Talíbanar grimmilega herferð sína til að útrýma konum úr opinberu lífi. Síðan þeir tóku völdin hafa þeir gefið út meira en 70 tilskipanir sem brjóta gegn réttindum stúlkna og kvenna – sérstaklega rétti þeirra til menntunar.

Fólk helst við í tjöldum eftir jarðskjálftana mannskæðu í austurhluta Afganistans.
Fólk helst við í tjöldum eftir jarðskjálftana mannskæðu í austurhluta Afganistans. Mynd: UNOCHA/Ahmad Khalid Khaliqi

Óþolandi og heimskulegt

„Það sem er að gerast í Afganistan er algjörlega óþolandi. Og það er ekki aðeins óþolandi; það er líka heimskulegt. Því að það að leyfa ekki konum og stúlkum að taka þátt í mannúðaraðstoð er hræðilega skaðlegt fyrir alla íbúa Afganistan,” sagði aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres.

Sameinuðu þjóðirnar hafa einnig fengið tilkynningar um að öryggissveitir hafi reynt að banna konum í þjónustu sinni að ferðast á vettvang hamfara, þar á meðal til að styðja konur og stúlkur sem hluta af viðbrögðum við jarðskjálftanum sem reið yfir austurhluta Afganistans í síðasta mánuði. Þeim er einnig meinað að fá aðgang að aðgerðasvæðum fyrir afganska flóttamenn sem snúa aftur frá Íran og Pakistan.

Samkvæmt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, hafa yfir 2,4 milljónir manna snúið aftur til Afganistans frá nágrannalöndum sínum frá janúar. Vegna takmarkananna hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna tímabundið stöðvað starfsemi á stöðum þar sem heimkomnir einstaklingar fá fjárhagsaðstoð og aðra aðstoð svo þeir geti endurbyggt líf sitt eftir ára flótta og útlegð.