A-Ö Efnisyfirlit

Jarðskjálfti í Afganistan: Sameinuðu þjóðirnar koma nauðstöddum til hjálpar

Liðsmenn WHO eru komnar á vettvang á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum.
Liðsmenn WHO eru komnir á vettvang á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum. Mynd: WHO

Afganistan. Jarðskjálfti. Sameinuðu þjóðirnar hafa heitið því að „láta einskis ófreistað” til að nauðstöddum verði komið til bjargar eftir að harður jarðskjálfti reið yfir austurhluta Afganistans aðfararnótt 1.september.

Jarðskjálftinn mældist um 6 á Richter-kvarða. Hundruð hafa látist og heilu þorpin hafa verið þurrkuð út.  António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna lýsti yfir samstöðu með Afgönum. „Liðsveitir Sameinuðu þjóðanna í Afganistan hafa verið virkjaðar og við munum láta einskis ófreistað til að nauðstöddum verði komið til aðstoðar á jarðskjálftasvæðunum,“ sagði hann í yfirlýsingu.

Harðir jarðskjálftir eru alltíðir í Afagnistan. Mikil eyðilegging varð í Herat-héraði í október 2023.
Harðir jarðskjálftir eru alltíðir í Afagnistan. Mikil eyðilegging varð í Herat-héraði í október 2023. Mynd:  © WHO/Zakarya SafariMynd

Starfsfólk ýmissa stofnana Sameinuðu þjóðanna á vettvangi hefur skýrt frá mikilli eyðileggingu í fjórum austur-héruðum landsins þar á meðal í Nangarhar og Kunar. Starfsfólk Sameinuðu þjóðanna tekur nú þegar þátt í hjálparstarfi ásamt samstarfsaðilum sínum í mannúðarmálum.

Jarðskjálftinn reið yfir um miðnætti að staðartíma og því er ástæða til að óttast að margir hafi verið inni við og hafi lokast inni í rústum heimila sinna.

Skjálftamiðjan var á átta kílómetra dýpi. Hús skulfu bæði í Kabúl höfuðborg Afganistans og Islamabad höfuðborg Pakistans.

Fjölmargar stofnanir Sameinuðu þjóðanna hafa verið virkjaðar.
Fjölmargar stofnanir Sameinuðu þjóðanna hafa verið virkjaðar. Mynd: WHO

Lyf og hjálpargögn flutt til jarðskjálftasvæða

Á meðal þeirra stofnana Sameinuðu þjóðanna, sem leggja hönd á plóginn í hjálparstarfi, eru UNAMA, sveit samtakanna í Afganistan, Samræmingarskrifstofa mannúðarmála (OCHA), Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) og fleiri.

„Liðsmenn okkar eru á vettvangi á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum og meta nú heilbirgðisþarfir á staðnum,” sagði Alþjóða heilbrigðismálastofnunin í yfirlýsingu.

„Við höfum þegar hafist handa við að koma nauðsynlegum lyfjum og hjálpargögnum til jarðskjálftasvæðanna.”

Sjá nánar um Afganistan hér.