Að hjálpa ríkjum að takast á við loftslagsbreytingar

0
814
Loftslagsaðgerðafundur
Loftslagsaðgerðafundur SÞ september 2019

?? 75 ára afmæli – 75 dæmi um að Sameinuðu þjóðirnar skipti sköpum (13) ??

SÞ75 logo

Sameinuðu þjóðirnar aðstoða þróunarríki við að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga. 39 stofnanir og skrifstofur Sameinuðu þjóðanna hafa samstarf um að takast á við þennan vanda á heildrænan hátt.

Þannig fjármagnar  Alheims-umhverfisstofan (Global Environment Facility,GEF)) sem tíu stofnanir SÞ standa að, verkefni í þróunarríkjunum. Umhverfisstofan er fjármálaarmur Loftslagssáttmála Sameinuðu þjóðanna. 550 milljónum Bandaríkjadala er varið árlega í verkefni á sviði nýrrar tækni, orkusparnaðar, endurnýjanlegrar orku og sjálfbærra samgangna.

Asíu-Kyrrahafssvæðið er einn þeirra heimshluta sem verða mest fyrir barðinu á loftslagsbreytingum og búist er við að áhrifin verði enn djúpstæðari í framtíðinni. Þar er uppruni um helmings allrar losunar gróðurhúsalofttegunda.

Umhverfisstofnun SÞ (UNEP) beinir kastljósinu á þessu svæði að því:
– að bæta skilning og deila þekkingu á vísindum, stefnumótun og góðum fordæmum.

– að meta tækniþörf og greiða fyrir flutningi á tækni til aðlögunar og mildunar áhrifa.
– að flétta loftslagsmál inn í stefnumótun landa, eisntakra greina og áætlana.
– að greiða fyrir aðgangi að fjármagni.

Sjá nánar hér: https://www.unenvironment.org/regions/asia-and-pacific/regional-initiatives/helping-countries-tackle-climate-change

AðMótaFramtíðOkkar #UN75