A-Ö Efnisyfirlit

630 flutningabílar með aðstoð komust til Gaza á fyrsta degi vopnahlés

Vopnahléi fagnað á Gasa.
Vopnahléi fagnað á Gasa. Mynd: UN News

Gasasvæðið. Vopnahlé. Mannúðaraðstoð.

Vopnahlé gekk í gildi á sunnudag á Gasasvæðinu og um leið hófst straumur flutningabíla inn á svæðið með langþráða mannúðaraðstoð. Ísraelar hafa sett verulegar hömlur á flutninga mannúðaraðstoðar og stór hluti íbúa Gasa hafa rambað á barmi hungursneyðar.

„Um leið og vopnahléið gekk í gildi hófust flutningar mannúðaraðstoðar inn á Gasasvæðið í samræmi við áætlun um að auka aðstoð okkar við íbúana,“ sagði Tom Fletcher samræmingarstjóri mannúðaraðstoð Sameinuðu þjóðanna.

300 bílar til norður-Gasa

630 flutningabílar fluttu aðstoð til Gasa, þar af 300 til norðurhlutans, þar sem þarfi eru mestar.

Flutningabílar á vegum Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) fluttu tilbúnar máltíðir og hveitpoka til Gasa um landamærastöðvar í suðri og noðri. Markmið WFP er að, að minnsta kosti 150 flutningabílar flytja matvæli til Gasa daglega, auk þess að aðstoða samstarfsaðila við flutninga.

„Þetta er mikilvægt fyrsta skref, en þarfirnar á Gasa eru hrikalegar. Tvær milljónir manna hafa þurft á brýnni matvælaaðstoð að halda lengi,“ sagði Cindy McCain forstjóri WFP.
António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fagnaði vopnahléi og lausn gísla á Gasa.

„Við erum reiðubúin að styðja framkvæmdina og efla mannúðaraðstoð til óteljandi Palestínumanna sem halda áfram að þjást,“ sagði aðalframkvæmdastjórinn á samfélagsmiðlum.

Birgðir til þriggja mánaða

Sameinuðu þjóðirnar hafa undirbúið vopnahléið. „Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsaðilar okkar eru reiðubúin að grípa þetta tækifæri til að hefja umfangsmeikið hjálparstarf, því hver sekúnda skiptir máli,“ sagði Muhannad Hadi samræmandi mannúðar Sameinuðu þjóðanna á herteknu svæðunum.

Matvælaáætlunin hefur nægilegar birgðir matvæla við landamærin og á leið til Gasa til að brauðfæða rúmlega eina milljón manna í þrjá mánuði. UNRWA, Palestínuflóttamannahjálpin hefur síðan birgðir fyrir milljón manna til viðbótar.WFP hefur einnig áætlanir um að hjálpa því sem eftir er af hagkerfi Gasa. Ætlunin er að láta 100 þúsund manns njóta góðs af reiðufjár- og skömmuntarmiðahjálp til að aðstoða verslanir og auka valfrelsi fólks.