8.mars: Kastljós á Jafnréttiskynslóð   

0
901
Alþjóðegur dagur kvenna
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna

Þema Alþljóðlegs baráttudags kvenna 8.mars 2020 er „Ég er JafnréttisKynslóðin: Að hrinda kvenréttindum í framkvæmd.”

Þemað tengist herferð UN Women, Jafnréttisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, Jafnréttiskynslóðinni, sem markar 25 ára afmæli Beijing-yfirlýsingarinnar og aðgerðaáætlun. Hún er talin hafa markað tímamót sem framsækinn vegvísir fyrir valdeflingu kvenna og stúlkna hvarvetna.

António Guterres aðaframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna leggur áherslu á að „jafnrétti kynjanna sé í grunninn spurning um vald.“

Kjallaragrein

Í kjallaragrein sem hann skrifaði og birtist í blöðum um allan heim – þar á meðal Fréttablaðinu – segir Guterres:

„Konum er meinað að sitja í öndvegi hvort heldur sem er í ríkisstjórnum eða fyrirtækjastjórnum eða við útdeilingu eftirsóttra verðlauna. Kvenkynsleiðtogar og opinberar persónur sæta ofsóknum, hótunum og svívirðingum í netheimum sem annars staðar. Launabil kynjanna er aðeins birtingarform valdaójafnvægis.“

Alþjóða kvennadagurinn
Ég stend með henni -# I am with her

#WithHer  (#MeðHenni) er ný skapandi herferð á samfélagsmiðlum á vegum frumkvæðisins Spotlightysem Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar standa að. Því var ýtt úr vör í Brussel 5.mars en markmiðið er að lýsa stríði á hendur ofbeldi gegn konum og stúlkum, og vinna fullnaðarsigur fyrir 2030.

Ofbeldi gegn konum og stúlkum er eitt útbreiddasta, þrálátasta og skaðvænlegasta mannréttindabrot í heiminum í dag.

  • 1 kona af hverjum þremur sætir íkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi.
  • 15 milljónir stúlkna (15-19) hafa upplifað þvingað kynferðislegt samræði.
  • 137 konur eru myrtar á hverjum degi af fjölskyldumeðlimi.
  • 650 milljónir kvenna og stúlkna eru giftar fyrir 18 ára aldur.
  • 200 milljónir kvenna og stúlkna hafa sætt misþyrmingu á kynfærum.

Þessu ber að linna. Alls staðar. Núna.

 

Spotlight
Spotlight er herferð Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandsins til höfuðs ofbeldi gegn konum.