Veraldarleiðtogar eru nú á leið til New York þar sem oddvitar ríkja og ríkisstjórna ávarpa 80. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hver á fætur öðrum.
Hinar svokölluðu almennu umræður hefjast þriðjudaginn 23.september og lýkur mánudaginn 29.september. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er á mælendaskrá laugardaginn 27.september.
Áður en umræðan hefst flytur aðalframkvæmdastjórinn ársskýrslu um starf samtakanna og því næst flytur forseti allsherjarþingsins ávarp.
Það hefur komið í hlut Brasilíu að hefja umræðurnar frá árinu 1955 með aðeins tveimur undanteknum (1983-1984). Bandaríkin sem gistiríki eru næst á mælendaskrá eins og oftast nær.
Röð annara ríkja ræðst af því hve háttsettur fulltrúi þeirra er, þeirra eigin óskir og ýmis önnur sjónarmið, svo sem landfræðileg.
Betri saman
Þema umræðunnar er „Betri saman: Í þágu friðar, þróunar og mannréttinda í 80 ár;” og er vísað til afmælis Sameinuðu þjóðanna á þessu ári.
80. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna er haldið við þær aðstæður að endurnýja þarf alþjóðlegar skuldbindingar við fjölþjóðastarf, samstöðu og sameiginlegar aðgerðir í þágu heimsbyggðarinnar og plánetunnar.
Auk almennu umræðu þjóðarleiðtoga verða ýmsar umræður háttsettra fulltrúa um tiltekin málefni. Hér að neðan eru helstu fundir tíundaðir.
22.september
80 ára afmæli Sameinuðu þjóðanna: degi áður en almennu umræðurnar hefjast, mánudaginn 22.september, er sérstakur klukkustundar fundur til að minnast 80 ára afmælisins með þátttöku fulltrúa samtakanna og oddvita ríkja og ríkisstjórna. Þar verður yfir árangur síðustu átta áratuga og það sem framundan er.
Palestína/tveggja ríkja lausn: Sama dag hefst að nýju ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um friðsamlega lausn Palestínu-vandans og framkvæmd tveggja ríkja lausnar undir forystu Frakklands og Sádi Arabíu.
Stund Heimsmarkmiðanna: Á hverju ári er haldin svokölluð stund Heimsmarkmiðanna til að varpa ljósi á þýðingarmiklar aðgerðir í þágu þeirra. Þar er kastljósi beint að frásögum um umbreytingu samfélaga, ríkja og heimshluta í ýmsum geirum frá endurnýjanlegri orku til jafnréttis kynjanna.
Beijing 30: Allsherjarþingið boðar háttsetta fulltrúa til sérstaks fundar til að minnast þrítugsafmælis fjórðu kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Þar verður farið yfir árangur og ástand jafnréttismála þrjátíu árum eftir Beijing-yfirlýsinguna mikilvægu. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er á meðal ræðumanna.
24.september
Loftslagsaðgerðir: Aðalframkvæmdastjórinn er gestgjafi sérstaks fundar málsmetandi fulltrúa um loftslagsaðgerðir. Fundurinn er vettvangur leiðtoga til að kynna nýjar landsáætlanir (NDCs) í aðdraganda Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Belém í Brasilíu (COP 30).
Ósmitandi sjúkdóma: Hátt settur fundur um að hindra og ná stjórn á ósmitandi sjúkdómum og að efla geðheilbrigði og vellíðan.
Stjórn gervigreindar: Fundi háttsettra fullrúa er ætlað að ýta úr vör alheims-umræðu um stjórn gervigreindar í heiminum.
Nánari upplýsingar um alla fundi háttsettra fullrúa á 80.Allsherjarþinginu má sjá hér.
Nánari upplýsingar um almennu umræðurnar hér.
Bein netútsending frá umræðunum má sjá hér.
