A-Ö Efnisyfirlit

Afmæli Beijing-yfirlýsingarinnar minnst en varað við afturför

Jafnrétti kynjanna er snar þáttur í Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun.
Jafnrétti kynjanna er snar þáttur í Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun. Mynd: UN Women/Amanda Voisard

Alþjóðlegi kvennadagurinn. Alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Beijing-yfirlýsingin.

Þess er minnst á Alþjóðlega kvennadeginum 8.mars að 30 ár eru liðin frá samþykkt Beijing yfirlýsingarinnar og aðgerðaáætlunar í jafnréttismálum. Þessi samþykkt er talin framsæknasti og árangursríkasti vegvísir sem samþykktur hefur verið í heiminum um réttindi kvenna og stúlkna.

Beijing-yfirlýsingin og aðgerðaáætlunin voru samþykkt á fjórðu Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Beijing, höfuðborg Kína 1995.

Kvennaráðstefnan í Beijing í september 1995.
Kvennaráðstefnan í Beijing í september 1995. Mynd: UN Photo/Zheng Yan Hui

Alþjóðlegi kvennadagurinn eða Alþjóðlegur baráttudagur kvenna 8.mars er að þessu sinni helgaður meðal annars þrítugsafmæli Beijing-yfirlýsingarinnar.

30 ára framfarir

„Á Alþjóðlega kvennadeginum, heiðrum við þrjátíu ára framfarir og árangur frá Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Beijing,“ sagði António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í ávarpi í tilefni Alþjóðlega kvennadagsins.

„Með þessu varð umbreyting á réttindum kvenna, og endurnýjuð staðfestinga á þeim sem hluta mannréttinda. Frá þeim tíma haf akonur og stúlkur rutt úr vegi hindrunum, ögrað staðlímyndum og krafist þeirrar stöðu sem þeim ber.“

Beijing-ráðstefnan
Beijing-ráðstefnan

Nýr vandi

Á hinn bóginn kvaðst Guterres nauðsynlegt að horfast í auga við nýjan vanda, því réttindi kvenna ættu undir högg að sækja. Auk gamalla drauga, á borð við ofbeldi, mismunun og efnahagslegan ójöfnuð, væri nú við vanda að etja sem rekja mætti til nýrrar tækni. Hann beindi sérstaklega að algóryþþmum sem stjórnuðu samfélagsmiðlum og með hvaða hætti ofbeldi, áreitni og misnotkun þrifust á netinu.

„Í stað þess að hafa jafnrétti í hávegum er kvenfyrirlitning upphafin,” sagði Guterres. „Við verðum að berjast gegn þessari ósvinnu.“

Sjá einnig hér og hér.