Veröldin tók róttækum breytingum fyrir áttatíu árum þegar Bandaríkin vörpuðu kjarnorkusprengju á japönsku borgina Hiroshima í Síðari heimsstyrjöldinni.
Borgin reis upp úr rústunum en kjarnorkustríð er enn ógn við heimsbyggðina sagði Izumi Nakamitsu afvopnunarstjóri Sameinuðu þjóðanna í ávarpi við Friðarminninismerkið í Hiroshima þegar 80 ára afmælisins var minnst 6.ágúst.
Minnismerkið er einfaldlega eina byggingin sem eftir stóð í miðborg Hiorshima, þar sem fyrsta kjarnorkspengja í sögunni var sprengd.
Eftirlifendur, ættingjar, fulltrúar alþjóðasamtaka og 120 ríkja, voru í hópi 55 þúsund manns, sem tóku þátt í minningarathöfninni.

UN Photo/Eskinder Debebe
Hinna látnu minnst – eftirlifendur heiðraðir
„Á þessu áttræðisafmæli minnumst við hinna látnu. Við styðjum fjölskyldurnar sem varðveita minninguna,“ sagði Nakatmisu, en hún flutti ávarp fyrir hönd aðalframkvæmdastjórans António Guterres.
Hún vottaði sérstaklega svokölluðum hibakusha virðingu sína. Það er japanska heitið yfir eftirlifendur kjarnorkuárásina á Hiroshima og Nagasaki, þremur dögum síðar. „Raddir þeirra hafa öðlast siðferðilegan styrk í þágu friðar.“
„Þeim fækkar ár frá ári, en vitnisburður þeirra og eilífur friðarboðskaður þeirra lifir á meðal okkar.“

Að endurvekja vonina
Nakamitsu rifjaði upp að á örskotsstundu varð Hiroshima rústir einar og tugir þúsunda létust. „Mannkynið varð ekki samt eftir. Ekki varð aftur snúið.”
Hún minnti á að margir hefðu talið að borgin myndi aldrei rísa úr rústunum, en þökk sé þrautseiglu íbúanna varð sú ekki raunin.
„Þið Hiroshima-búar endurreistuð ekki aðeins borgina, þið endurreistuð vonina. Þið hafið haldið lífi í voninni um heim án kjarnorkuvopna og deilt henni með heiminum.“

