Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb Helfararinnar. Helförin.
Þess er minnst í ár að áttatíu ár eru liðin frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar og Helfararinnar. Sex milljónir gyðingar voru myrtir af nasistum og samverkamönnum þeirra.
„Við stöndum við hlið fórnarlamba, eftirlifenda og fjölskyldna þeirra,” segir António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í ávarpi á Alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb Helfararinnar. Dagurinn er haldinn 27.janúar en þann dagt árið 1945 frelsaði Rauði herinn Auschwitz útrýmingarbúðirnar.
Gleymum aldrei
„Við ítrekum staðfestu okkar að gleyma aldrei. Ef við leyfum minningunni um Helförina að dofna, erum við að vanvirða fortíðina og svíkja framtíðina.“
Ríkisstjórnir heims tóku höndum saman fyrir áttatíu árum og stofnuðu Sameinuðu þjóðirnar sem andsvar við grimmdarverkum heimsstyrjaldarinnar og Helförinni. Markmiðið var að byggja réttlátan heim þar sem mannréttindi væru í öndvegi og allir gætu lifað í friði við sæmd.
Þema alþjóðlega minningardagsins um fórnarlömb Helfararinnar er: „Minning og fræðsla um Helförina í þágu sæmdar og mannréttinda.“
Þemað endurspeglar hve þýðingarmikil minningin um Helförina er fyrir nútímann, nú þegar stöðugt er grafið undan sæmd og mannréttindum fólks í heiminum.
Þegar hatur og afmennskun sigra
Helförin sýnir okkar hverjar afleiðingarnar eru þegar hatur, afmennskun og og sinnuleysi sigra.
„Á þessum sundrungar-tímum -og nú rúmu ári eftir hörmulegu hryðjuverkaárásir Hamas 7.október– verðum við að slá skjaldborg um sameiginlega mennsku okkar,” segir Guterres. „Okkur ber að fordæma gyðingahatur, rétt eins og við verðum að fordæma hvers kyns kynþáttahatur, fordóma og trúarlega hleypidóma. Og okkur ber að endurnýja staðfestu okkar í að vernda sæmd og mannréttindi allra.“
Hve djúpt mannkynið getur sokkið
Gyðingar voru ekki einu fórnarlömb því nasistar reyndu einnig að útrýma Roma og Sinti fólki, fólki með fötlum, myrtu pólitíska fanga og stríðsfanga.
„Þekking á sögu Helfararinnar sýnir manni hve djúpt mannkynið getur sokkið,“ segir Guterres. „Það skiptir máli að skilja hvernig nasistar gátu framið sína viðbjóðslegu glæpi með fulltingi annara. Og að gera sér grein fyrir að hverju og einu okkar ber skylda til að láta rödd okkar heyrast gegn hatursorðræðu og í þágu mannréttinda allra.“
Sjá einnig hér.
