A-Ö Efnisyfirlit

800 milljónir ungmenna horfa fram á framtíð án atvinnu

Ungar konur í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, læra hagnýta færni til að bæta atvinnumöguleika sína. © UNICEF/Khalil Ashawi
Ungar konur í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, læra hagnýta færni til að bæta atvinnumöguleika sína. © UNICEF/Khalil Ashawi

Um 800 milljónir ungmenna sem koma inn á vinnumarkaðinn í þróunarríkjum á komandi árum munu ekki fá vinnu nema ríki grípi til aðgerða, varaði yfirmaður Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) við á þriðjudag. Stofnunin hleypti af stokkunum tveimur verkefnum til að efla fjárfestingu og atvinnu.

„Ef litið er til næstu 15 ára munu 1,2 milljarðar ungmenna ljúka skólagöngu og fara út á vinnumarkaðinn,“ sagði Alexander De Croo, forstjóri UNDP, á blaðamannafundi í New York í gegnum fjarfundabúnað frá Bangkok, þar sem hann situr ársfundi Alþjóðabankahópsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS).

„Því miður verða aðeins störf fyrir 400 milljónir þeirra. Fyrir 800 milljónir þeirra verða engin störf.“

De Croo sagði að bilið stafaði af lýðfræðilegum þáttum – í mörgum þróunarríkjum er miðgildi aldurs á bilinu 18 til 25 ár – og núverandi stöðu tækninnar.

„Þetta mun ekki leysast af sjálfu sér. Þetta er afleiðing stefnumótunar,“ sagði hann.

Búiist er við að 1.2 milljarðar ungmenna séu á leið á vinnumarkaðinn en útil er fyrir að einungis 400 milljónir starfa verði í boði. Mynd: UNDP
Búiist er við að 1.2 milljarðar ungmenna séu á leið á vinnumarkaðinn en útil er fyrir að einungis 400 milljónir starfa verði í boði. Mynd: UNDP

Frá fjárfestingu til starfa

Af verkefnunum tveimur mun Fjárfestingarhraðallinn (Investment Accelerator) aðstoða stjórnvöld við að bæta fjárfestingarstefnu og lagaramma, byggja upp safn fjárfestingarhæfra verkefna og færa þau frá undirbúningi til framkvæmdar.

Sjóðurinn Störf til velsældar (Jobs for Prosperity Facility) mun hjálpa ríkjum að greina geira með mikla möguleika á atvinnusköpun, samræma færni við þarfir atvinnurekenda og takast á við hindranir sem standa í vegi fyrir fjárfestingu fyrirtækja og ráðningum.

Aðspurður hvort gervigreind (AI) hefði áhrif sagði De Croo að spárnar gætu breyst með virkri vinnumarkaðsstefnu og benti á að geirar á borð við umönnun, landbúnað og ferðaþjónustu myndu áfram skapa fjölda starfa jafnvel þótt gervigreind sækti í sig veðrið.

„Atvinnusköpun er í raun eina raunverulega sjálfbæra leiðin fyrir fólk til að vaxa upp úr fátækt,“ sagði hann.

Bæði verkefnin njóta stuðnings aukins samstarfs við Alþjóðabankahópinn, Fjárfestingarbanka Evrópu og Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu, og tilraunaverkefni eru þegar hafin í Nepal, Jemen, Haítí, Líbanon og Gana.

„Þreföld áföll“

Verkefnunum er hleypt af stokkunum á sama tíma og mörg þróunarríki standa frammi fyrir því sem De Croo kallaði „þreföld áföll“: háum orkukostnaði, einu öflugasta El Niño-veðurfyrirbæri frá árinu 1950 og mjög háum lántökukostnaði.

Samkvæmt nýrri skýrslu UNDP, No Time to Recover, ver miðgildisþróunarríkið nú 9,5 prósentum af heildartekjum hins opinbera í vaxtagreiðslur einar saman.

Í fyrsta sinn síðan 2010 hefur fjöldi fólks sem býr við fjölvíddarfátækt – sem mælir ekki aðeins tekjur heldur einnig aðgang að rafmagni, vatni, heilbrigðisþjónustu og menntun – aukist.

„Þessar tölur ættu svo sannarlega að vekja okkur öll til umhugsunar,“ sagði De Croo.

Þótt efnahagur heimsins hafi reynst þrautseigari en búist var við dreifist sú þrautseigja ekki jafnt, bætti hann við.

„Sum ríki búa enn við nokkuð sterkar efnahagslegar undirstöður. Önnur hafa ekki undirstöðurnar til að standast frekari áföll.“