Í fyrsta sinn frá árinu 2010 fer fjölvíð fátækt í heiminum vaxandi. Ný skýrsla sem Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) og Oxford Poverty and Human Development Initiative (OPHI) gáfu út árið 2026 leiðir í ljós að 1,2 milljarðar manna búa við sára fátækt um allan heim – 51,5 milljónum fleiri en í síðustu uppfærslu, miðað við sambærilegan samanburð.
Fjölvíð fátækt (e. m. multidimensional poverty) vísar til ástands þar sem einstaklingar eða fjölskyldur líða skort á mörgum mikilvægum sviðum lífsins samtímis, svo sem á sviði menntunar, heilbrigðisþjónustu og almennra lífskjara, en ekki eingöngu út frá tekjum.
Fátækt snýst um meira en peninga. Milljónir manna glíma við margs konar erfiðleika samtímis, allt frá hungri og ófullnægjandi menntun til ótrygg drykkjarvatns og skorts á rafmagni. Þessar áskoranir styrkja oft hver aðra og gera fjölskyldum erfiðara að brjótast út úr fátækt.
„Aukin fátækt ætti að vera heiminum vakning,” segir Alexander De Croo, framkvæmdastjóri UNDP. „Á bak við þessar tölur eru 1,2 milljarðar manna sem standa frammi fyrir erfiðleikum sem styrkja hver annan: hungri, glataðri skólagöngu og skorti á hreinu vatni eða rafmagni. Þetta er óásættanlegt. En þetta þarf ekki að vera svona. Við vitum að framfarir eru mögulegar. Ríki sem hafa tekist á við þessar áskoranir í sameiningu, frekar en hverja í sínu lagi, hafa sýnt hverju markvissar aðgerðir geta skilað.“
Börn og dreifbýlissamfélög verða verst úti
Af þeim 1,2 milljörðum manna sem í hlut eiga eru 617 milljónir börn og 83 prósent búa í dreifbýli. Takmarkaður aðgangur að heilbrigðisþjónustu, menntun og grunninnviðum gerir það að verkum að margir búa við vanda sem getur fylgt þeim alla ævi.
Hluta af aukinni fátækt í heiminum má rekja til fólksfjölgunar. Engu að síður undirstrika niðurstöðurnar brýna þörf á að bæta lífskjör og tryggja að þróun nái til þeirra sem eru í mestri hættu.
Framfarir eru mögulegar en ekki sjálfgefnar
Þrátt fyrir aukninguna á heimsvísu eru sum ríki að ná eftirtektarverðum árangri. Egyptaland, Nepal og Tadsjikistan hafa dregið verulega úr bæði fátæktarhlutfalli og fjölda þeirra sem í hlut eiga. Önnur ríki, þar á meðal Angóla og Sambía, hafa lækkað fátæktarhlutfallið, þó að fólksfjölgun hafi valdið því að heildarfjöldi þeirra sem búa við fátækt hafi aukist.
Nígería sýnir hversu brothættar framfarir geta verið. Eftir að hafa dregið úr svokallaðri fjölvíðri fátækt á öðrum áratug aldarinnar varð bakslag þar í landi á þeim þriðja. Einnig er ástæða til bjartsýni. Þrjátíu og þrjú ríki hafa helmingað gildi sitt á fjölvíðum fátæktarstuðli (MPI) á innan við 15 árum. Esvatíní lækkaði fátæktarhlutfall sitt úr 38,7 prósentum í aðeins 8 prósent á 15 árum, á meðan Kína náði 50 prósenta lækkun á MPI-gildi sínu á aðeins fjórum árum. Víetnam helmingaði einnig MPI-gildi sitt innan sjö ára.
Þessi dæmi sýna að raunverulegar breytingar eru mögulegar þegar ríki takast á við margar víddir fátæktar samtímis.
Áskorun sem heimurinn getur ekki litið fram hjá
Skýrslan undirstrikar mikilvægi þess að takast á við fátækt sem samtengt vandamál. Betri menntun ein og sér getur ekki leyst vanda barns sem skortir fullnægjandi næringu, rétt eins og aðgangur að heilbrigðisþjónustu dugar ef til vill ekki fjölskyldu sem hefur hvorki hreint vatn né rafmagn. Stjórnvöld verða því að samþætta aðgerðir til að bæta nauðsynlega þjónustu og beina þeim að þeim samfélögum sem mest þurfa á að halda.
Niðurstöðurnar vekja einnig spurningar um framgang heimsins í átt að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem miða að því að helminga fátækt í öllum sínum víddum fyrir árið 2030.
Sjá einnig hér.
