Á meðan hungur ríkir munum við aldrei lifa í friðsælum heimi

0
690
WFP Friðarverðlaun Nóbels
Omar, fjögurra ára, situr á hveitsekkjum WFP í Khawlan i Jemen. Mynd: WFP/Mohammed Awadh

Þegar tilkynnt var að Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna (WFP) fengi friðarverðlaun Nóbels var aðalaáherslan lögð á baráttu hennar við hungur í heiminum. WFP hefur hins vegar einnig lagt lóð sín á vogarskálarnar í friðarviðleitni og það fór ekki framhjá norsku Nóbelsnefndinni.   

Í tilkynningu nefndarinnar sagði að WFP legði grundvöll að friði á átakasvæðum. “WFP er leiðandi í því að hindra að hungri sé beitt sem vopni í styrjöldum og átökum,” segir jafnframt í rökstuðningi Nóbelsnefndarinnar.

Forstjóri WFP David Beasly segir hungur og átök haldast í hendur. „Það leikur enginn vafi á því. Við getum ekki brotið hungur á bak aftur nema að við bindum enda á átök.“

690 milljónir svelta

WFP Friðarverðlaun Nóbels
Skólastúlkur flytja matarskammta með sér heim áður en skólar lokuðu í Mósambík í April. Mynd: Karel Prinsloo/Arete/UN Mozambique

Nóbelsnefndin beindi athygli heimsins að þýðingarmiklu starfi WFP við að aðstoða samfélög sem hungurvofan hefur leikið grátt; starf stofnunarinnar við að koma matvælum til stríðshrjáðra svæða, auk friðarviðleitninnar.

690 milljónir manna í heiminum vita ekki hvenær eða hvernig þeir fá næstu máltíð, að mati Sameinuðu þjóðanna. Hungur er ein mesta ógnin við frið, að mati forstjórans David Beasley.

„Styrjaldarátökum fylgir hungur og þar sem hungur ríkir þar eru oft átök. Án friðar getum við ekki náð því markmiði að útrýma hungri í heiminum. Á meðan hungur ríkir munum við aldrei lifa í friðsælum heimi.“

WFP er stærsta mannúðarstofnun heims og starfa 17 þúsund manns á hennar vegum, flestir á vettvangi.

 Milljónir geta orðið sulti að bráð

WFP Friðarverðlaun Nóbels
Lýðveldið Kongó. WFP sér um birgðaflutning í mannúðarstarfi Sameinuðu þjóðanna. Mynd: WFP/John Wessels

COVID-19 hefur leikið efnahag og samfélög grátt um allan heim. Baráttan um brauðið hefur enn harðnað og kemur ofan á skaðvænleg áhrif loftslagsbreytinga. Þar að auki hefur ofneysla á Vesturlöndum haft í för með sér að auðlindi víða eru að ganga til þurrðar. Næg matvæli eru framleidd í heiminum til að braðfæða heimsbyggðina en engu að síður er þriðji hver maður  vannærður. Það veldur síðan keðjuverkun með hægari framþróun menntunar og auknu atvinnuleysi.

 Hluti heimsmarkmiða

Ekkert hungur er annað í röð Heimsmarkmiðanna sautján um sjálfbæra þróun.

Það felur í sér að stefnt er að upprætingu hungurs, að bundinn verði endir á fæðu-óöryggi, næring bætt og sjálfbær landbúnaður efldur. Á öllum þessum sviðum er WFP í forystu í heiminum.

Hér eru 10 atriði sem vert er að vita um WFP:

1.WFP er öflugasta stofnun heims á sviði mannúðarmála og aðstoðar 100 milljónir bágstaddra í 88 ríkjum.

2.Á hverjum degir eru fimm þúsund og sex hundruð flutningabílar, 30 skip og 100 flugvélar á þönum í starfi fyrir WFP og flytja matvæli og aðrar brýnar nauðsynjar til bágstaddra á sumum af afskekktustu og hættulegustu stöðum heims.

3.WFP er í framvarðasveit þegar neyðarástand skapast  af völdum átaka, veðurfars, farsótta og annaar hamfara. WFP glímir við neyðarástand í 20 ríkjum eða svæðum í heiminum þessa stundina og er orsakanna oftast að leita í vopnuðum átökum.

4.WFP útvegar 17.3 milljónum barna skólamáltíðir. Með þessu fá börnin betri næringu og geta haldið áfram námi.

5.Framlög til WFP hafa hækkað á undanförnum árum. Árið 2019 voru þau hærri en nokkru sinni fyrr eða 8 milljarðar Bandaríkjadala, en vantar 4.1 milljarð til að endar nái saman í starfinu.

6.WFP er tengiliður á milli smábænda og markaða í meir en 40 ríkjum. Árið 2019 keypti stofnunin matvæli fyrir andvitðir 37.2 milljóna dala af smábændum sem framleiða mestan hluta matvæla heimsins.

7.Hundrað tuttugu og sjö þúsund hektarar lands voru teknir undir framleiðslu og gróðursett á sjö þúsund hektörum á vegum WFP. Þetta eykur fæðuöryggi til lengri tíma og eykur þolgæði gagnvart loftslagsbreytingum.

8.WFP kom 4.3 milljón smálestum matvæla til nauðstaddra. Það er álíka og 840 þúsund Asíu-fílar að þyngd.

9.Meir en þrír fjórðu hlutar matar sem WFP kaupir kemur frá þróunarríkjum. Slíkt sparar tíma og fé við flutninga og glæðir staðbundinn efnahag.

10.WFP leggur áherslu á greiðslur í reiðufé. WFP lætur 2.1 milljarða af hendi rakna með því að afhenda nauðstöddum í 64 ríkjum  fé til matarkaupa. Með þessu eykst val og staðbundnir markaðir eflast.

Styðjið WFP fjárhagslega og bjargið mannslífum. Sjá nánar hér.