Hafráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Nice í Frakklandi hefur samþykkt aðgerðaáætlun og pólitíska yfirlýsingu. 170 ríki skuldbundu sig í yfirlýsingunni til að grípa til aðgerða til að vernda hafið og nýta á sjálfbæran hátt.
Pólitíska yfirlýsingin ber heitið Hafið okkar, framtíð okkar: sameinuð um brýnar aðgerðir. Í henni er hvatt til áþreifanlegra aðgerða í því skyni að stækka verndarsvæði í hafinu, draga úr kolefnisnotkun í flutningum á sjó og berjast gegn mengun í hafinu. Þá er hvatt til aukinna fjárveitinga til viðkvæmra strand- og eyríkja.
Yfirlýsingin auk frjálsra skuldbindinga einstakra ríkja og eininga, mynda saman Nice aðgerðaáætlunina um hafið. Hún er afrakstur fimm daga ráðstefnu í Nice.
„Það ber að fylgja rækilega eftir því að staðið verði við þau loforð sem gefin voru í vikunni, sagði ráðstefnustjórinn Li Junhua.
Hafráðstefna Sameinuðu þjóðanna: helstu frjálsu skuldindingar:
- Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnti um fjárfestingar að verðmæti einnar milljóna evra til að styðja við verndun sjávar, til að efla vísindi og sjálfbærar fiskveiða.
- Franska Pólinesía tilkynnti um stofnun stærsta verndarsvæðis í heimi. Það mun ná yfir alla efnahagslögsöguna eða um 5 milljónir fermetra.
- Þrjátíu og sjö ríki, undir forystu Panama og Kanada, tilkynntu um stofnun bandalags í þágu „þögla hafsins.“ Er þetta fyrsta umtalsverða alþjóðlega frumkvæði sem miðar að því að draga úr hávaðamengun í hafinu.
- Spánn kynnti skuldbindingu um að stofna fimm ný verndarsvæði í hafinu. Munu þau ná yfir 25% hafsvæðis Spánar.
Helmingi allra sjávarlífvera kann að hafa verið útrýmt fyrir 2100. © Patrick Webster
Samningurinn um líffræðilega fjölbreytni í hafinu
19 ríki til viðbótar hafa staðfest Samning um vernd og sjálfbæra nýtingu hafsvæða utan lögsögu einstakra ríkja. Hann heyrir undir Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Auk ríkjanna sem staðfestu, undirrituðu 20 ríki til viðbótar samninginn.
Þar með hafa 136 ríki staðfest hann og 50 staðfest, auk Evrópusambandsins. Tíu til viðbótar þurfa að staðfesta til þess að hann gangi í gildi.
Samningurinn, sem oft er kenndur við skammstöfunina BBNJ, var samþykktur í júní 2023. Hann er þýðingarmikið lagalegt úrræði til þess að vernda líf og vistkerfi sjávar á þeim tveimur þriðju hlutum heimshafanna sem eru utan lögsögu einstakra ríkja.
Nice-ráðstefnan
Hafráðstefna Sameinuðu þjóðanna var sótt af 55 yfirmönnum ríkja og ríkisstjórna ásamt fimmtán hundruð þátttakendum úr röðum borgaralegs samfélags, fyrirtækja og fræðaheims. Hún stóð yfir í Nice frá 9.til 13.júní og voru Frakkland og Costa Rica í forsæti ráðstefnunnar.
