A-Ö Efnisyfirlit

Hvernig glæða má áhuga stúlkna á að halda áfram í íþróttum

Stelpur í körfuboltaliði í Mangueira í Brasilíu
Stelpur í körfuboltaliði í Mangueira í Brasilíu.Mynd: UN Women/Gustavo Stephan.

Stúlkur. Íþróttir. Viltu beina stúlkum inn á árangursríka braut? Hlúðu að áhuga þeirra á íþróttum!

Stúlkur, sem stunda íþróttir frá blautu barnsbeini og halda því áfram eru ekki aðeins að tryggja sér gott líkamlegt ástand. Þær öðlast einnnig sjálfstraust, þolgæði og hæfni, sem liggur grunn að framtíð þeirra.

Þegar íþróttir eru öruggar, vel skipulagðar, og opnar öllum, geta þær stuðlað að því að stelpur öðlist færni til heilbrigðrar ákvarðanatöku og aðlögunar, betra sjálfsálit og aukinn kjark til að takast á við áskoranir.

UN Women, Jafnréttisstofnun Sameinuðu þjóðanna, fór yfir mikilvægi kvennaíþrótta í tilefni af Evrópukeppni kvennalandsliða í knattspyrnu, sem stendur yfir í Sviss frá 2.til 27.júlí 2025.

Stelpur í fótbolta í Gaziantep í Tyrklandi. Mynd.: UN Women.
Stelpur í fótbolta í Gaziantep í Tyrklandi. Mynd.: UN Women.

Auk þeirra kosta, sem þegar hafa verið nefndir, má tengja íþróttaiðkun við betri námsárangur, betri framavonir í starfi og síðbúnari barneignir. 80% þeirra kvenkynsforstjóra sem stýra fyrirtækjum á lista Fortune-ritsins yfir 500 stærstu fyrirtækin í Bandaríkjunum, hafa stundað íþróttir. Flestar þeirra segja að íþróttaiðkun hafi greitt fyrir árangri þeirra

„Ef lífið er leikur margra áskorana, þá eru íþróttir, ekki síst hópíþróttir, eins og æfing fyrir lífið,” segir Eda Erdem tyrknesk blakstjarna. „Já, maður verður þreyttur. Mann langar til að hætta. En þessi þreyta…? Hún byggir mann upp. Hún styrkir mann. Og ef manni tekst að halda áfram, tryggir það árangur.”

Eda Erdem tyrknesk atvinnukona í blaki.
Eda Erdem tyrknesk atvinnukona í blaki. Mynd: UN WOMEN

En þrátt fyrir allt það, sem íþróttir hafa upp á að bjóða, hafa tvisvar sinnum fleiri stúlkur en drengir hætt íþróttaiðkun fyrir 14 ára aldur.  Af hverju hætta stelpur í íþróttum? Staðalímyndir, þrýstingur, líkamsbreytingar, minnkandi sjálfsálit og stuðningsleysi hafa sitt að segja. En litlar aðgerðir geta skipt sköpum.

  1. Hlustið og leyfið henni að ráða

Allar stúlkur dreymir ekki um að verða fyrirliðar og skora sigurmörk. Lykillinn er að gefa stúlkum frelsi til að kanna ýmiss konar íþróttir og frístundir þar til þær finna eitthvað sem vekur áhuga þeirra og hvetur þær áfram.

Pankeaw Plypoolsup meistari í klettaklifri frá Tælandi
Pankeaw Plypoolsup meistari í klettaklifri frá Tælandi. Mynd: UN Women/Pathumporn Thongking

Einu gildir hvort um er að ræða fimleika, skilmingar, sund, hjólreiðar, dans eða fótbolta – það er engin ein leið öðrum betri til að vera virk. Sumar stelpur laðast að samkeppni, aðrar þrífast á skapandi hreyfingu, eða að tilheyra liði. Mestu skiptir að reynslan sé jákvæð og að stúlkunni finnist að hún ráði ferðinni.

Stelpur sem upplifa að þær hafi val og vald eru líklegri til að halda áfram íþróttum til lengri tíma litið.

Athlete Laura Ordóñez hjólreiðakona.
Athlete Laura Ordóñez hjólreiðakona. Mynd: UN Women/Miguel Varona.

Vissir þú að stúlkur eru undir þrýstingi að hætta í íþróttum?  

  • 70% stúlkna finnast þær ekki eiga heima í íþróttum vegna staðalímynda.
  • Þriðja hver stúlka segir að lítið sjálfsálit standi þeim fyrir þrifum.
  • Aðeins 40-57% stúlkna segjast hafa jákvæða reynslu af íþróttum.
  • 63% stúlkna segja að það vanti konur í þjálfarastörfum og kvenfyrirmyndir.
  • Konur eru aðeins 2.7% af þeim sem gegna stjórnunarstöðum í knattspyrnuliðum í Brasilíu. Engu að síður eru lög í gildi, sem kveða á um að öll félög sem fái lottó-fé skuli hafa að minnsta kosti 30% kvenna í stjórnunarstöðum.
  1. Áhersla á hvatningu en ekki fullkomnum

Orð skipta meira máli en við gerum okkur oftast grein fyrir. Mikilvægt er að hrósa viðtleitni, framförum og gleði, ekki aðeins sigrum og árangri.

Varast ber að ræða líkamsástand eða þyngd. Þvert á móti á að fagna því hvað líkami stúlkunnar er fær um, að hún finni fyrir styrk sínu, hve miklum framförum hún hefur náð og hve ákveðin hún er.

Íþróttum ber að vera öruggur staður þar sem mistök eru hluti af lærdómi, og framförum er fagnað. Slík jákvæð nálgun hjálpar stúlkum að tengja íþróttir við sjálfstraust og ánægju og slíkar tilfinningar hvetja hana til að halda áfram.

Ólympíuleikarnir í París 2024.
Ólympíuleikarnir í París 2024.
  1. Að tala um óþægilega hluti

Þegar stúlkur komast á unglingsaldur, skýtur ný tegund af þrýstingi upp kollinum. Óöryggi vegna líkamsímyndar gerir oft vart við sig, félagslegur samanburður eykst, sjálfstraust skerðist, ótti við að vera dæmd eykst, og skömm og ýmsir þröskuldar í tengslum við blæðingar gera vart við sig.

Þessar áskoranir geta hæglega dregið úr áhuga stúkna á að halda áfram ástundun íþrótta ef ekki er tekið á þeim. Þesss vegna eru opinská og heiðarleg samtöl þýðingarmikil.

Það þarf að taka því sem gefnum hlut að sama hve miklum árangri íþróttamaður nær, mun hann engu að síður eiga góða og slæma daga. Brýnt er að viðurkenna að líkami stúlkunnar mun breytast og að þesar breytingar eru eðlilegar, heilbrigðar og ekkert til að skammast sín fyrir.

Þegar stúlkum finnst að á þær sé hlustað, þær mæti skilningi og þær njóti stuðnings á þessu breytingaskeiði, er líklegar að þær láti ekki deigan síga.

Vissir þú að blæðingar eru meiri háttar þröskuldur fyrir íþróttaiðkun?

  • 84% of stúlkna í Bretlandi missa áhugann á íþróttum eftir að blæðingar hefjast.
  • 58% indverskra stúlkna hafa misst úr í íþróttaiðkun vegna blæðinga.
  • 77% breskra íþróttakvenna í úrvalsflokki segja að blæðingar hafi áhrif á frammistöðu þeirra.
  • Íþróttakonur í  Bangladesh segja að skortur á blæðingavörum og aðgangi að einkasalernum hindri stúlkur í að halda íþróttaiðkun áfram.
Brasilíska knattspyrnukonan Marta Vieira da Silva.
Brasilíska knattspyrnukonan Marta Vieira da Silva.

Fátækt mín í æsku og stuðningur móður minnar voru áreiðanlega helstu ástæður þess að ég var staðföst í því að sigrast á því sem ég þurfti alltaf að glíma við þegar í harðbakkann sló,” segir Marta Vieira da Silva. Hún er frá Brasilíu og er oftast kölluð Marta. Hún var knattspyrnukona heims árin  2006, 2007 og 2008.

„Þeir voru til sem reyndu vitandi vits að grafa undan hvatningu og aga, en ég náði að halda áfram vegferð minni og láta draum minn rætast.”

  1. Hreyfing hluti af daglega lífinu

Íþróttir eru ekki bara stundaðar á velli eða í skipulögðum keppnum. Hreyfing þarf að vera hluti af daglega lífinu og foreldrar og umönnunaraðilar hafa hér hlutverki að gegna.

Fjölskyldan getur farið í gönguferðir eða hjólatúra. Sparka má bolta úti í garði eða dansa í eldhúsinu. Jóga má stunda heima til að slaka á fyrir háttinn. Þannig að sýna má stúlkunni fram á að hægt er að vera virk á öllum aldri og það er hluti af blönduðum heilbrigðum lífsstíl – ekki bara í barnæsku.

Stela dreymir um að vera atvinnukona í boxi. UN Women Moldova/ Diana Savina.
Stela dreymir um að vera atvinnukona í boxi. UN Women Moldova/ Diana Savina.
  1. Að horfa saman á kvennaíþróttir

Takið ykkur tíma til að horfa á kvennaíþróttir saman hvort heldur sem er Evrópukeppnina í fótbolta, Ólympíuleika eða Ólympíuleika fatlaðra nú eða leiki heima í héraði. Fylgið íþróttakonum á samfélagsmiðlum. Deilið sögum af konum, sem sigrast hafa á erfiðleikum.

Stúlkur þurfa að sjá konur sem taka forystu og ná árangri. Fyrirmyndir hjálpa stúlkum að dreyma stærra, sigrast á erfiðleikum á erfiðum stundum, og öðlast trú á að þær tilheyri líka heimi íþrótta.

„Þátttaka í íþróttum felur einnig í sér að losa sig við kynbundnar staðalímyndir og að uppgötva alla möguleika sína,“ segir blakstjarnan Eda Erdem. „Þegar þú gefst ekki upp ertu öðrum innblástur. Þú ert ekki eins, það eru stelpur á sama velli sem dreymir sömu drauma.“

Kvennalið frá Kongó fagnar sigri.
Kvennalið frá Kongó fagnar sigri. Mynd: UN Women/Adriana Borra.
  1. Minntu á að íþróttir byggja upp hæfni

Stelpur, sem halda áfram í íþróttum, öðlast sjálfstraust, þolgæði. og forystuhæfileika, læra liðsvinnu, tímastjórnun og vandamálalausn. Þetta nýtist þeim miklu víðar en á íþróttavellinum.

85% kvenna, sem stundað hafa íþróttir í æsku, segja að þessi hæfni hafi mótað árangur þeirra í atvinnulífinu. Og þegar um er að ræða konur í stjórnunarstöðum er hlutfallið enn hærra.

Jafnvel þótt stúlkur komist ekki í atvinnumennsku, þá mun sá lærdómur, sem þær öðlast í íþróttum verða þeim leiðarljós í skóla, vináttu, vinnu og lífinu almennt.

Hver einasta stúlka á skilið að fá tækifæri til að halda áfram í leiknum. Með stuðningi getum við hjálpað fleiri stelpum að halda áfram að vera virkar, vera sjálfsöruggar og leysa úr læðingi alla möguleika sína í íþróttum og hvarvetna.

Sjá einnig hér, hér og hér.