Ísrael-Íran. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur lýst þungum áhyggjum af stigmögnun átaka Ísraela og Írana.
„Ég ítreka enn að draga þarf úr stigmögnun og koma á vopnahléi,“ sagði Guterres í yfirlýsingu. Þar varaði hann við því að fleiri ríki blönduðust í átökin.
„Hvers kyns hernaðarleg íhlutun gæri haft hrikalegar afleiðingar, ekki aðeins fyrir þá sem í hlut eiga, heldur allan heimshlutann og alþjóðlegan frið og öryggi almennt,“ sagði hann.
Hann fordæmdi „sorglegt og nauðsynjalaust mannfall óbreyttra borgara og tjón á heimilum og mikilvægum borgaralegum innviðum.”
Ráðist á tvær stöðvar
250 manns að minnsta kosti höfðu látið lífið í báðum löndum í átökunum á miðvikudag.
Alþjóða kjarnorkumálastofnunin (IAEA), sem hefur haft eftirlit með kjarnorkuáætlunum Írans um áratuga skeið, segist hafa fengið tilkynningar um að ráðist hafi verið á tvær af þeim stöðvum sem hún hefur haft umsjón með.
Kjarnorkumálastofnunin tilkynnti í síðustu viku að Íranir hefðu ekki staðið við skuldbindingar sínar um takmörkun á þróun kjarnorku.
