Tveggja ára stríð í Súdan hefur bitnað harðast á óbreyttum borgurum. Astandið í landinu er í einu orði sagt skelfilegt.
Um tólf milljónir manna hafa flúið heimili sínu og eru engin dæmi um slíkan fjöldaflótta í heiminum. Þetta er álíka og rétt rúmur íbúafjöldi Belgíu eða Svíþjóðar. Um 3.8 milljónir hafa flúið á náðir nágrannaríkja.
100 myrtir
Rannsakendur á vegum Sameinuðu þjóðanna segjast óttast að „myrkustu kaflarnir” séu enn framundan, eftir að rúmlega hundrað manns voru myrtir í fjöldamorðum í búðum í Darfur héraði um helgina.
Flóttafólk leitar skjóls í yfirgefinni byggingu í austurhluta Súdans. Mynd © UNICEF/Osman Rajab
Vígasveitir hliðhollar RSF sveitunum, sem berjast við stjórnarher Súdans, réðust 11.apríl með samræmdum hætti á Zamzam og Abu Shouk, tvær fjölmennustu búið fyrir uppflosnað fólk innanlands, auk héraðshöfuðborgarinnar El Fasher.
Á meðal hinna látnu voru 23 börn, auk níu mannúðarstarfsmanna. Þeir störfuðu í einni af síðustu heilsugæslustöðinni sem eftir er á svæðinu. Hjálparstarfsmenn hafa sætt áráusum og haf a90 þeirra verið drepnir frá upphafi átaka.
Almennir borgarar þjást
Almennir borgarar bera þyngstu byrðarnar í borgarastríðinu, enda er engu skeytt um mannslíf.
„Handahófskenndar stórskotaliðs- og loftárásir halda áfram að drepa og særa,“ sagði António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í yfirlýsingu vegna tveggja ára afmælis borgarastríðsins.
„Ráðist er á markaðstorg, sjúkrahús, skóla, guðshús og búðir uppflosnaðs fólks. Kynferðislegt ofbeldi er landlægt og konur og stúlkur sæta hryllilegum árásum. Almennir borgarar eru fórnarlömb alvarlegra brot og misnotkunar af hálfu allra stríðandi fylkinga.“
25 milljónir svelta
Rúmlega þrjátíu milljónir manna þurfa á mannúðaraðstoð að halda, en það er álíka og allur íbúafjöldi Norðurlandanna samanlagður og hálfri annari milljón betur. Helmingur íbúa Súdans, eða 25 milljónir, líða verulegt hungur. Nú þegar afurðir síðasta uppskerutíma eru á þrotum hefur hungursneyð verið lýst yfir á fimm svæðum og fleiri munu bætast við.
Á síðasta ári náðu Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsaðilar þeirra til 15.6 milljóna manna með, að minnsta kosti, einhvers konar aðstoð. En þarfirnar eru gríðarlega miklar. Átök og óöryggi, auk skifræðislegra hindrana og niðurskurðar fjárveitinga, hafa komið í veg fyrir að mannúðarstarfsmenn nái til margra staða, þar sem þeirra er mest þörf.
„Eina leiðin til að tryggja vernd borgarannar er að binda enda á þessi glórulausu átök,, sagði Guterres. „Ég hef þungar áhyggjur af því að vopn og vígamenn streyma áfram til Súdans. Slíkt leiðir til þess að átök halda áfram og breiðast út um landið. Stöðva ber straum stuðnings og vopna erlendis frá. Þeir sem mest áhrif hafa á stríðandi fylkinga verða að nota áhrif sín í þágu almennings í landinu í stað þess að viðhalda þessari skelfingu.“
Við megum ekki gleyma Súdan
Grundvallarþjónusta hefur verið lögð í rúst. Milljónir barna fá ekki kennslu og minna en fjórðungur heilbrigðiskerfisins er starfhæfur á þeim svæðum sem harðast hafa orðið úti. Árásir á innviði eru daglegt brauð með þeim afleiðingum að íbuarnir hafa hvorki vatn né öruggt drykkjarvatn.
„Súdan er á meðal helstu forgangsmála Sameinuðu þjóðanna. Ég mun halda áfram að virkja leiðtoga ríkja heimshlutans í þágu sameiginlegrar friðarviðleitni,” sagði Guterres. „Heimurinn má ekki gleyma íbúum Súdans.“
