A-Ö Efnisyfirlit

Alvarlegustu hungur hamfarir síðari ára blasa við Súdan  

WFP dreifir matvælum í Súdan.
WFP dreifir matvælum í Súdan. Mynd: OCHA/Sari Omer

Súdan. Hungur.

Helmingur íbúanna í Súdan, 25 milljónir manna, þurfa á mannúðaraðstoð að halda, þar á meðal 14 milljónir barna.

 Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) hefur varað við því að ástandið í Súdan gæti orðið alvarlegasta hungurkreppa heimsins á síðari tímum.

Eftir 20 mánaða allsherjar borgarastríð lifa 24.6 milljónir Súdana við alvarlegt fæðu-óöryggi. Þetta er álíka og íbúafjöldi Ástralíu og hátt í samanlagður íbúafjöldi Norðurlanda. Fólkið skortir matvæli, vatn, húsaskjól, rafmagn, menntun og heilsugæslu.

 Eftir að borgarastríðið hófst í apríl 2023 hafa 12 milljónir manna annað hvort lent á vergangi innanlands eða flúið til nágrannaríkja. Þetta er álíka og allur íbúafjöldi Belgíu.

Rúmlega átján þúsund manns hafa týnt lífi og meir en 33 þúsund særst.

Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna og Afríkusambandsins í Zam Zam flóttamannabúðunum í Darfur.
Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna og Afríkusambandsins í Zam Zam flóttamannabúðunum í Darfur.

Hamfarir af mannavöldum

 Sameinuðu þjóðirnar hafa bent á að hungur hamfarirnar í Súdan séu af mannavöldum, en lausn þeirra sé einnig á færi manna. Eina varanlega lausnin er að bundinn verði endi á átökin. Ramtane Lamamra sérstakur sendimaður aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna styður við friðarviðleitni í samstarfi við samtök í þessum heimshluta.

Hægt er að koma í veg fyrir hungursneyð í Súdan. Það stendur hins vegar hjálparstarfi fyrir þrifum að steinar eru lagðir í götu flutninga á mannúðaraðstoð til bágstaddra. Án öruggs og fyrirsjáanlegs aðgangs að matvælum og hjálpargögnum, má búast við stórauknu mannfalli.

Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsaðilar þeirra hafa náð til 12.6 milljóna manna með mannúðaraðstoð á árinu 2024, þrátt fyrir erfiðleika og fjárskort.

Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna og Afríkusambandsins í Zam Zam flóttamannabúðunum í Darfur.
Friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna og Afríkusambandsins (UNAMID) ræðir við flóttamenn. Mynd: UN Photo/Albert Gonzlez Farran

Fjárskortur

 Á sama tíma og Súdanar hafa sára þörf yfir gjafmildi alþjóðasamfélagsins hafa fjárveitingar verið af skornum skammti.

Samræmingarskrifstofa mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum (OCHA) hefur lagt fram beiðni um fjárveitingar að upphæð 4.2 milljörðum Bandaríkjadala til að bjarga lífi næstum 21 milljónar bágstaddra, endurreisa grundvallarþjónustu og auka vernd fólksins.

Aðeins tókst að fjármagna 63% af sams konar beiðni á síðasta ári, að upphæð 2.7 milljarða dala, en þá var markmiðið að ná til 14.7milljóna manna.

 Þjóðarmorð

Alice Wairimu Nderitu, sérstakur ráðgjafi aðalframkvæmdastjórans um að koma í veg fyrir þjóðarmorð hefur varað við því að sjá megi öll einkenni þjóðarmorðs í Súdan. Óbreyttir borgarar sæti árásum vegna uppruna síns og kynþáttar. Hún flutti Öryggisráði Sameinuð þjóðanna skýrslu eftir heimsókn til flóttamanna í nágrannaríkinu Tsjad.

„Það sem ég heyrði var skelfilegt. Flóttamenn lýstu grimmdarlegu ofbeldi, sem þeir urðu fyrir og drógu ekki dul á atriði sem benda til að markmiðið hafi verið að uppræta tiltekin þjóðarbrot. Slíkt athæfi er eitt af helstu atriðum, sem skilgreina þjóðarmorð,“ sagði Wairimu Nderitu.