Allsherjarþingið: Gervigreindin í fyrsta skipti í brennidepli

Blaðamenn fylgjast með komu þjóðarleiðtoga á 81.allsherjarþinginu.
Blaðamenn fylgjast með komu þjóðarleiðtoga á 81.allsherjarþinginu. Mynd: UN Photo/Laura Jarriel G

81.allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Gervigreind. Eftir sex daga ræðuhöld á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna bar eitt orð af öllum öðrum: friður.

Þegar hinni árlegu allsherjarumræðu lauk á mánudag sagði forseti allsherjarþingsins, Khalilur Rahman, að leiðtogar hefðu staðið frammi fyrir heimi sem einkenndist af átökum, stöðnun í þróun, vaxandi ójöfnuði og ört vaxandi tæknibreytingum. En þrátt fyrir mjög ólík sjónarmið heyrði hann sameiginlega sannfæringu: Sameinuðu þjóðirnar eru enn ómissandi.

Khalilur Rahman forseti 81.allsherjarþingsins. Mynd
Khalilur Rahman forseti 81.allsherjarþingsins. Mynd:.UN Photo/Loey Felipe

Sex dagar, sex lykilatriði

  • Friður var í fyrirrúmi. Leiðtogar töluðu um hann ekki sem fjarlægt markmið, sagði Rahman forseti, heldur sem brýna vörn fyrir sáttmála Sameinuðu þjóðanna, alþjóðalög og vernd almennra borgara.
  • Þróunarmál eru á tímaþröng. Þar sem aðeins lítill hluti heimsmarkmiðanna um sjálfbæra þróun er á áætlun, gaf hann afdráttarlausan dóm um hvort meira hefði átt að gera: „Svarið hlýtur að vera ótvírætt já.“
  • Ójöfnuður mótar umræðuna. Hann benti á að þau lönd sem glíma við mestu skuldabyrðina, viðkvæmni fyrir loftslagsbreytingum og fjárhagslegar takmarkanir hafa einnig minnst áhrif á þær stofnanir sem móta alþjóðahagkerfið.
  • Mannréttindi reyna á þegar erfitt er að verja þau. Hann benti sérstaklega á meðferð almennra borgara, minnihlutahópa, farandfólks og flóttafólks, og útilokun kvenna og stúlkna frá menntun, atvinnu og opinberu lífi.
  • Gervigreind er komin í sviðsljósið. Fyrir aðeins fjórum árum nefndu aðeins fimm sendinefndir gervigreind í þingsalnum, sagði hann. Í ár gerðu 128 það og spurningar um stjórn, ábyrgð og jafnan aðgang voru áberandi.
  • Traust gæti verið erfiðasti hallinn til að bæta. „Ekki er hægt að skipa fyrir um traust,“ sagði Rahman forseti. „Það verður að ávinna sér það með samræmi milli orða og athafna.“

Sjá einnig hér.