81. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna var sett 8. september í höfuðstöðvum samtakanna. Nýkjörinn forseti þingsins hét því að endurheimta traust almennings á stofnuninni á tímum stríðs, mannúðarkrísu og vaxandi loftslagsbreytinga.
Eftir að hafa formlega tekið við „Þórshamrinum,” hinum íslenska fundarhamri úr hendi fráfarandi forseta þingsins, Annalesu Baerbock, kynnti Khalilur Rahman frá Bangladess lykilþema ársins: Að endurheimta traust, stýra umbreytingum: Sameinaðar þjóðir sem skila árangri fyrir alla.

„Við verðum að gera Sameinuðu þjóðirnar hæfar fyrir framtíðina,“ sagði hann. „Við stöndum frammi fyrir því að traust skortir. Þetta er ekki 1945. Þetta er 81. þingið. Heimurinn hefur þróast. Samtökin verða að þróast og ég mun aðstoða við það ferli.“
Pólitískt vantraust
„Alþjóðalög og mannréttindi – kjarni samtaka okkar – eru of oft virt að vettugi refsilaust og pólitískt vantraust og tortryggni halda áfram að hindra þær árangursríku lausnir sem við þurfum og grafa undan trú fólks á möguleikum alþjóðlegrar samvinnu,“ sagði aðalframkvæmdastjórinn António Guterres í ræðu sinni.
Annað forgangsverkefni er að velja næsta yfirmann samtakanna, sem hefur störf í janúar 2027.
„Þegar ég tek þátt í setningu allsherjarþings í síðasta sinn sem aðalframkvæmdastjóri, ber ég mikla von í brjósti vegna þess starfs sem hér fer fram,“ sagði Guterres.
Leiðtoga vika allsherjarþingsins
Almennar umræður oddvita aðildarríkja á 81. allsherjarþinginu fara fram 22.–26. september og 28. september 2025. Fulltrúar 193 aðildarríkja, forsetar, forsætisráðherrar, utanríkisráðherrar eða sendiherrar ávarpa allsherjarþingið. Hefð er fyrir því að Brasilía hefji umræðuna og á eftir fylgir gestgjafaþjóðin, Bandaríkin.
Á viku hinna háttsettu eða leiðtogavikunni (high-level week) 18.–28. september 2026 fara fram nokkrir hliðarviðburðir auk almennu umræðnanna.
Þeir eru meðal annars:
- september:Stund heimsmarkmiðanna.
Hin árlega stund heimsmarkmiðanna beinir sjónum að hvetjandi aðgerðum í þágu heimsmarkmiðanna um sjálfbæra þróun.
- september:Aðgerðir í loftslagsmálum og réttlát umskipti.
Þessi loftslagsráðstefna mun leiða saman leiðtoga frá stórum hagkerfum, þróuðum ríkjum og þróunarríkjum, viðkvæmum þjóðum og stórum orkuframleiðendum og -neytendum til að styrkja samvinnu á mikilvægum tímamótum.
- september:40 ára afmæli yfirlýsingarinnar um réttinn til þróunar.
Yfirlýsingin um réttinn til þróunar, sem allsherjarþingið samþykkti árið 1986, ruddi brautina í alheimsbaráttunni fyrir aukinni mannlegri reisn, frelsi, jafnrétti og réttlæti.
- september:Tilvistarógn af völdum hækkunar sjávarborðs.
Hástigsfundurinn um hækkun sjávarborðs mun leiða saman leiðtoga heims, sérfræðinga og aðra hagsmunaaðila til að takast á við brýna og vaxandi ógn af völdum hækkandi sjávarborðs.
- september:Forvarnir gegn heimsfaraldri.
Eins dags fundur sem miðar að því að virkja pólitískan vilja til forvarna, viðbúnaðar og viðbragða gegn heimsfaraldri.
- september: 25 ára afmæli samþykktar Durban-yfirlýsingarinnar og aðgerðaáætlunarinnar.
Durban-yfirlýsingin og aðgerðaáætlunin er alþjóðleg áætlun um kynþáttaréttlæti og jafnrétti.
- september:Alger útrýming kjarnavopna.
Að ná fram alþjóðlegri kjarnorkuafvopnun er forgangsverkefni Sameinuðu þjóðanna í afvopnunarmálum
Sérstök vefsíða hefur verið sett upp með öllum upplýsingum um leiðtogavikuna.
