A-Ö Efnisyfirlit

Allsherjarþingið samþykkir Gasa-ályktun með miklum meirihluta

Tillagan um Gasa kom til kasta Allsherjarþingsins eftir að Bandaríkin beittu neitunarvaldi í Öryggisráðinu.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna: Tillagan um Gasa kom til kasta Allsherjarþingsins eftir að Bandaríkin beittu neitunarvaldi í Öryggisráðinu.

Gasasvæðið. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt með 149 atkvæðum gegn tólf ályktun þar sem því er mótmælt að hungurvopn sé beitt gegn íbúum Gasasvæðisins.

Ísland var eitt tuttugu ríkja sem stóð að ályktuninni og greiddi henni atkvæði. Sama gerðu önnur Norðurlönd, Bretland, Frakkland og Þýskaland, Kína, Rússland og Úkraína.

Bandaríkin, Ísrael, Argentína og Ungverjaland voru á meðal þeirra ríkja sem greiddu atkvæði á móti. Nítján ríki sátu hjá, þar á meðal Indland, Tékkland, Georgía og Rúmenía.

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna tóka málið fyrir eftir að Bandaríkin beittu neitunarvaldi gegn sams konar tillögu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Svona féllu atkvæði um tillöguna.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna: Svona féllu atkvæði um tillöguna.

Hætt verði að beita hungurvopni

Fleiri en 20 ríki stóðu að baki tillöguninni. Í henni er fordæmt að hungur sé notað sem vopn í stríði, þess krafist að Ísrael lyfti herkví sinni og leyfi flutning mannúðaraðstoðar til Gasa og þess krafist að ákvæði alþjóðalaga um vernd óbreyttra borgara séu virt. ´

Ályktanir Allsherjarþingsins eru ekki bindandi.

Helstu atriði ályktunarinnar eru:

  • Vopnahlé: Krafist er að komið verði á varanlegu vopnahléi  tafarlaust og skilyrðislaust.
  • Gíslar: Hamas og aðrir vígahópar láti alla gísla skilyrðislaust lausa. 
  • Hungurvopn: Fordæmir kröftuglega beitingu hungurvopns og hindrun mannúðaraðstoðar.
  • Mannúðaraðstoð: Flutningar og dreifing mannúðaraðstoðar verði leyfð um allt Gasasvæðið.
  • Hjálparastarfsmenn:  Öryggi þeirra verði trygt og starfsfólki Sameinuðu þjóðanna og öðru hjálparstarsfólki verði leyft að sinna starfi sínu.
  • Sjá nánar hér.