A-Ö Efnisyfirlit

Hungur sverfur að hálfri milljón Gasabúa

Palestínsk móðir við sjúkraskýli UNICEF.
Palestínsk móðir við sjúkraskýli UNICEF. Mynd: UNICEF/UNI601749/El Baba

Gasasvæðið. Hungur. Mannúðaraðstoð.

Nærri hálf milljón Gasabúa líður hamfarahungur þessa stundina og allir íbúarnir glíma við stórfellt fæðuóöryggi. Þetta kemur fram í nýrri matsskýrslu á vegum Sameinuðu þjóðanna og ýmissra hjálparsamtaka, sem kom út í dag 12.maí.

Þar kemur einnig fram að rúmlega 71 þúsund börn munu þurfa á brýnni meðferð að halda vegna alvarlegrar vannæringar. Í byrjun árs var talan 60 þúsund.

„Fjölskyldur á Gasa svelta heila hungri á meðan gnótt matvæla er að finna rétt handan landamærana,” segir Cindy McCain forstjóri WFP, Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna. „Við getum ekki komið fólkinu til hjálpar vegna endurnýjaðra átaka og algjörs banns við mannúðaraðstoð frá því í byrjun mars. Það er afar brýnt að alþjóðasamfélagið grípi nú þegar í taumana og komi aðstoð til Gasa að nýju. Ef við bíðum þess að hungursneyð verði staðfest, verður það of seint fyrir marga.“

Börn fá ekki lágmarksnæringu

17 stofnanir Sameinuðu þjóðanna og almannasamtök standa að baki matskýrslunni.

„Hætta á hungursneyð blossar ekki upp allt í einu, en smátt og smátt herjar hungrið þar sem fólki er meinaður aðgangur að matvælum, heilbrigðiskerfið er í rúst og börn fá ekki lágmarksnæringu til að lifa af. Hungur og áköf vannæring eru daglegur raunveruliki barna um allt Gasasvæðið,“ segir Catherine Russell forstjóri UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.

Sjá einnig hér.