A-Ö Efnisyfirlit

Alþjóðadagur gegn mansali: Föst í svikamyllu

Internetið býður upp á miklar hættur.

Alþjóðadagur gegn mansali. Glæpaiðnaður sem veltir milljörðum dollara og gerir atvinnuleitendur að fórnarlömbum nauðungarvinnu í netglæpum er í örum vexti, varar Alþjóða fólksflutningastofnunin (IOM) við.

Fórnarlömb frá yfir 80 mismunandi löndum eru seld mansali til svikamiðstöðva. Áætlað er að samanlagt árlegt tap vegna svikabrota í Austur-Asíu, Suðaustur-Asíu, Ástralíu og Nýja-Sjálandi verði á bilinu 88 til 114 milljarðar dollara fyrir árið 2025 eitt og sér. „Nema við tökum þetta mál mjög alvarlega, gerum við ráð fyrir að það haldi áfram að vaxa,“ varar Amy Pope, framkvæmdastjóri IOM, við. 30. júní er alþjóðadagurinn gegn mansali.

Alþjóðadagur gegn mansali 2026: þemað er föst í svikamyllu.
Alþjóðadagur gegn mansali 2026: þemað er föst í svikamyllu.

Þema 2026: Föst í svikamyllu

Alþjóðadagur gegn mansali beinir að þessu sinni sjónum að þemanu „Föst í svikamyllu“. Með því er ætlunin að vekja athygli á ört vaxandi tegund mansals þar sem alþjóðlegir skipulagðir glæpahópar notfæra sér fólk til að stunda fjársvik í stórum stíl. Fórnarlömbin eru seld í mansal til nauðungarglæpa og neydd til að taka þátt í svikastarfsemi á netinu. Þessi tegund misnotkunar er nátengd netglæpum, fjársvikum, peningaþvætti og spillingu, sem sýnir hversu samtvinnuð skipulögð glæpastarfsemi er orðin.

Hvernig fórnarlömbin festast

Mansalsmenn ráða fórnarlömb oft með fölskum atvinnuauglýsingum sem lofa löglegum atvinnutækifærum erlendis. Í þeirri trú að þau séu að þiggja raunverulega vinnu ferðast fórnarlömbin til annars lands en lenda þar innilokuð í ólöglegum svikabúðum.

Mansalsmenn ráða fórnarlömb oft með fölskum atvinnuauglýsingum sem lofa löglegum atvinnutækifærum erlendis.
Mansalsmenn ráða fórnarlömb oft með fölskum atvinnuauglýsingum sem lofa löglegum atvinnutækifærum erlendis.

Innan þessara búða eru fórnarlömbin neydd til að stunda netsvik, þar á meðal rómantísk svik, svik með rafmyntir og aðrar svikamyllur á netinu sem beinast að fólki um allan heim. Þau eru undir stöðugu eftirliti og sæta ofbeldi, hótunum, skuldakvöð og óraunhæfum vinnukröfum, sem skilur þau eftir föst í ótta með litla möguleika á flótta.

Kostnaðarsamur alþjóðlegur glæpur

Í Austur- og Suðaustur-Asíu áætlar Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um fíkniefni og afbrot (UNODC) að svik hafi valdið fjárhagslegu tapi á bilinu 18 til 37 milljarða Bandaríkjadala árið 2023 eingöngu. Stórt hlutfall i þessa taps er tengt svikum sem framin eru af skipulögðum glæpahópum með aðsetur á svæðinu.

Mansal.
Mansal. Mynd: IOM

Efling rannsókna

Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um fíkniefni og afbrot (UNODC) styður lönd í Suðaustur-Asíu við að bæta auðkenningu fórnarlamba, rannsóknir og saksóknir sem tengjast mansali vegna nauðungarglæpa, netsvika og peningaþvættis. Þetta felur í sér framhaldsþjálfun, stuðning við sérhæfðar verkefnasveitir og öflugra samstarf yfir landamæri.

Uppfærsla laga fyrir nútímaglæpi

UNODC veitir löndum einnig ráðgjöf um lagabreytingar sem nauðsynlegar eru til að sækja til saka allan skala glæpa sem tengjast alþjóðlegri skipulagðri glæpastarfsemi, þar á meðal stórfelldu peningaþvætti, netglæpum og spillingu.

Mansal í Serbíu
Mansal í Serbíu (UNODC)

Samstarf yfir landamæri

Þar sem þessir glæpir teygja sig oft yfir mörg lönd er alþjóðlegt samstarf nauðsynlegt. Samningur Sameinuðu þjóðanna gegn netglæpum, sem allsherjarþingið samþykkti í desember 2024, veitir nýjan alþjóðlegan ramma til að efla samstarf gegn stafrænum glæpum, svikum á netinu og tæknivæddri skipulagðri glæpastarfsemi.

Samningurinn styður hraðara alþjóðlegt samstarf og samræmdari söfnun og miðlun rafrænna sönnunargagna, sem hjálpar yfirvöldum að rannsaka og uppræta glæpanet sem starfa yfir landamæri.

Hvatt til aðgerða

Á alþjóðadeginum gegn mansali 2026 kallar UNODC eftir öfl.ugri aðgerðum til að vernda fórnarlömb og bæta samstarf dómstóla og löggæslu yfir landamæri. Þessar aðgerðir eru nauðsynlegar til að raska starfsemi skipulagðra glæpahópa sem standa á bak við svikastarfsemi tengda mansali.

Sjá einnig hér og hér