A-Ö Efnisyfirlit

Barnahjónabönd: norsk kona rýfur þögnina

Daniella Nordhagen hlýtur Jenteprisen-verðlaunin 2026 frá Plan International í Noregi fyrir baráttu sína gegn nauðungarhjónaböndum, félagslegri stjórnun og heiðurstengdu ofbeldi. Með því að deila eigin sögu vonast hún til að gefa berskjölduðum stúlkum rödd.
Daniella Nordhagen hlýtur Jenteprisen-verðlaunin 2026 frá Plan International í Noregi fyrir baráttu sína gegn nauðungarhjónaböndum, félagslegri stjórnun og heiðurstengdu ofbeldi. Með því að deila eigin sögu vonast hún til að gefa berskjölduðum stúlkum rödd.

Norski rithöfundurinn og fyrirlesarinn Daniella Nordhagen, sem var þvinguð í hjónaband 13 ára gömul,  hefur rofið þögnina um barnahjónabönd. Hún hefur í ræðu og riti notað eigin reynslu til að vekja athygli á heiðurstengdu ofbeldi og því hvernig stofnanir bregðast í að vernda viðkvæmar stúlkur.

Alþjóðadagur um afnám barnahjónabanda, snemmbúinna hjónabanda og nauðungarhjónabanda er haldinn á vettvangiSameinuðu þjóðanna í fyrsta sinn þann 27. nóvember. Af því tilefni hvetur hún til vitunarvakningar og raunverulegra aðgerða.

Daniella Nordhagen. Alþjóðadagur um afnám barnahjónabanda, snemmbúinna hjónabanda og nauðungarhjónabanda.
Daniella Nordhagen. Alþjóðadagur um afnám barnahjónabanda, snemmbúinna hjónabanda og nauðungarhjónabanda. Mynd: Agnete Brun

Daniella Nordhagen fagnar því að alþjóðadagur Sameinuðu þjóðanna hafi verið stofnaður og lítur á hann sem mikilvægt tækifæri til að vekja athygli á vandamáli sem er allt of oft falið. „Það er mjög mikilvægt að tileinka þessu vandamáli sérstakan dag,“ segir hún. En viðurkenningin ein og sér bindur ekki enda á barnahjónabönd. „Það er mjög mikilvægt að tala um stúlkurnar. Þetta vandamál er til staðar alls staðar,“ segir hún – líka í Noregi.

Alþjóðadagur um afnám barnahjónabanda, snemmbúinna hjónabanda og nauðungarhjónabanda var stofnaður í kjölfar frumkvæðis Síerra Leóne, sem forsetafrú landsins, Fatima Maada Bio, hefur barist fyrir. Hann minnir okkur á að barnahjónabönd eru alþjóðlegt vandamál en ekki eitthvað sem einskorðast við fjarlæg lönd eða samfélög sem við teljum ef til vill ólík okkar eigin.

Ein stúlka á þriggja sekúndna fresti

Samkvæmt UNICEF eru um 12 milljónir stúlkna gefnar í hjónaband fyrir 18 ára aldur á hverju ári.

Talið er að 650 milljónir kvenna og stúlkna sem nú eru á lífi hafi verið giftar sem börn — sem jafngildir um það bil einni stúlku á þriggja sekúndna fresti.

Daniella Nordhagen talar um nauðungarhjónabönd og félagslega stjórnun. Samkvæmt UNICEF eru um 12 milljónir stúlkna gefnar í hjónaband fyrir 18 ára aldur á hverju ári – sem jafngildir einni stúlku á þriggja sekúndna fresti.
Daniella Nordhagen talar um nauðungarhjónabönd og félagslega stjórnun. Samkvæmt UNICEF eru um 12 milljónir stúlkna gefnar í hjónaband fyrir 18 ára aldur á hverju ári – sem jafngildir einni stúlku á þriggja sekúndna fresti. Mynd: einkasafn.

Nordhagen hefur kosið að tala opinskátt um reynslu sína, ekki vegna þess að það sé auðvelt að rifja upp fortíðina, heldur vegna þess að hún trúir því að saga hennar geti hjálpað öðrum stúlkum að finna leið áfram. Framlag hennar hlaut viðurkenningu 11. október 2026, á alþjóðadegi stúlkubarnsins, þegar Plan International í Noregi veitti henni Jenteprisen 2026 fyrir baráttu hennar gegn nauðungarhjónaböndum, félagslegri stjórnun og heiðurstengdu ofbeldi.

Fyrir Nordhagen endurspeglar viðurkenningin ástæðuna fyrir því að hún ákvað að stíga fram til að byrja með.

„Ég hugsaði að ef enginn vill tala um þetta, þá mun heldur ekkert breytast,“ segir hún í samtali við UNRIC. „Ég veit að ég get ekki bjargað heiminum, en allt byrjar með sögu eða með því að einhver talar um eitthvað sem er rangt í samfélaginu.“

Frá persónulegri sögu til opinberrar raddar

Nordhagen ólst upp í Ósló í fjölskyldu sem á rætur að rekja til Íraks. Þrettán ára gömul var hún neydd til að giftast frænda sínum. Hún var í hjónabandinu í þrjú ár og varð á þeim tíma fyrir kynferðislegri misnotkun og annars konar stjórnun.

Árum saman var óhugsandi að tala opinberlega um það sem gerst hafði. Árið 2010 bauðst henni að skrifa bók en henni fannst hún of ung og óundirbúin. Það var ekki fyrr en hún hafði komið sér upp stöðugra lífi, stofnað fjölskyldu og stundað nám undir leyndu auðkenni að hún fór að íhuga að deila reynslu sinni.

Daniella Nordhagen. Mynd: einkasafn.

„Mér bar skylda til að fræða samfélagið og ef til vill deila sögu minni til að hafa áhrif,“ útskýrir hún.

Ákvörðunin var ekki einföld. Fjölskylda hennar kom frá lítilli borg í Írak og hún vissi að birting persónulegra smáatriða gæti haft afleiðingar fyrir ættingja þar. Að tala opinskátt gæti einnig verið talið kalla skömm yfir fjölskyldu hennar. Að skrifa bókina þýddi að rifja upp sum sárustu augnablik bernsku hennar. Hún skrifaði bókina ásamt blaðakonunni Marte Spurkland og unnu þær saman í eitt ár og átta mánuði.

„Það var erfitt, sérstaklega þegar ég talaði um kynferðislegu misnotkunina,“ segir hún. „Ég hugsaði um að allir gætu lesið hvert einasta smáatriði í lífi mínu, sérstaklega mjög erfiðu hlutana.“

Norski rithöfundurinn og fyrirlesarinn Daniella Nordhagen nýtir reynslu sína af nauðungarhjónabandi til að vekja athygli á heiðurstengdu ofbeldi. Ljósmynd: Agnete Brun
Norski rithöfundurinn og fyrirlesarinn Daniella Nordhagen nýtir reynslu sína af nauðungarhjónabandi til að vekja athygli á heiðurstengdu ofbeldi. Ljósmynd: Agnete Brun

Hæsta verndarstig

Bók hennar, 1178 netter (1178 nætur), kom út í september 2024. Hún vakti mikla athygli í Noregi og bókasöfn um allt land keyptu eintök til að hjálpa til við að breiða út boðskap hennar. Frá útgáfu bókarinnar hefur Nordhagen haldið fyrirlestra og tekið þátt í opinberum umræðum og hitt fólk sem vill öðlast betri skilning á nauðungarhjónaböndum og þeim þrýstingi sem stúlkur búa við undir félagslegri stjórnun.

Eftir þrjú ár í hjónabandinu var þrýstingurinn og misnotkunin orðin óbærileg. Eftir að hún kom heim úr ferðalagi til Íraks opnaði Nordhagen sig fyrir fjölmenningarráðgjafa í Noregi og sagði frá því sem hafði komið fyrir hana. Það leiddi til þess að hún var flutt á neyðarfósturheimili og naut mestu auðkennisverndar, sem möguleg er í Noregi. Sextán ára hóf hún nýtt líf undir vernduðu auðkenni og tók upp eftirnafn fósturmóður sinnar.

Með viðtölum og opinberum umræðum leitast Daniella Nordhagen við að rjúfa þögnina um nauðungarhjónabönd og hvetja fleiri til að tala opinskátt um heiðurstengt ofbeldi.
Með viðtölum og opinberum umræðum leitast Daniella Nordhagen við að rjúfa þögnina um nauðungarhjónabönd og hvetja fleiri til að tala opinskátt um heiðurstengt ofbeldi. Mynd: einkasafn.

Mikilvægi þess að vera sýnileg

Nordhagen skilur hvers vegna margir þolendur kjósa að halda nafnleynd. Það getur fylgt því áhætta að tala opinberlega, sérstaklega þegar tillit er tekið til fjölskyldutengsla og væntinga samfélagsins. Hún íhugaði sjálf nafnleynd en ákvað að lokum að leggja nafn sitt og andlit við söguna.

„Allir geta talað um sögu, en þegar maður sér ekki andlit tengist maður sögunni ekki eins sterkt,“ segir hún.

Ákvörðun hennar hefur gert hana að sýnilegri rödd í málefni sem oft er erfitt að ræða. Hún leggur þó áherslu á að það að yfirgefa ótryggar aðstæður sé ekki einungis spurning um hugrekki. Fyrir barn geta fjölskylduhollusta, ótti og umhyggja fyrir yngri systkinum gert það ótrúlega erfitt að leita sér hjálpar.

Spurð hvað hún hefði viljað að einhver hefði skilið um aðstæður hennar þegar hún var þrettán ára rifjar Nordhagen upp að hún hafi verið ráðvillt og ekki haft hugmynd um hvert hún gæti leitað.

„Ég vildi óska að einhver hefði getað hjálpað mér út úr þessu án þess að ég eyðilegði fjölskylduna mína,“ segir hún.

Daniella Nordhagen kallar eftir aukinni samfélagslegri ábyrgð á verndun stúlkna. Skólar og yfirvöld verða að verða betri í að greina viðvörunarmerki og grípa til aðgerða.

Daniella Nordhagen kallar eftir aukinni samfélagslegri ábyrgð á verndun stúlkna. Skólar og yfirvöld verða að verða betri í að greina viðvörunarmerki og grípa til aðgerða. Mynd: einkasafn.

Hún minnist þess að hafa átt erfitt í skólanum og vonast til þess að kennari myndi átta sig á að eitthvað væri að. Þegar hún lítur til baka óskar hún þess að fullorðinn einstaklingur hefði gripið inn í og sýnt henni að öryggi hennar skipti máli.

„Stundum gekk mér mjög illa í skólanum. Svo ég hélt að kennarinn myndi kannski líta á það sem vísbendingu og hjálpa mér,“ rifjar hún upp. „Ég var algjörlega ráðvillt. Ég þurfti bara einhvern til að hjálpa mér út úr þessu hjónabandi.“

Skólar og ábyrgðin á að bregðast við

Nordhagen telur að skólar gegni lykilhlutverki í að bera kennsl á börn sem kunna að búa við þrýsting eða eiga á hættu að vera neydd í hjónaband. Kennarar eru oft meðal fárra fullorðinna utan fjölskyldunnar sem eru í reglulegum samskiptum við börn og geta verið í aðstöðu til að taka eftir viðvörunarmerkjum.

Daniella Nordhagen hlaut Jenteprisen-verðlaunin 2026 fyrir baráttu sína gegn nauðungarhjónaböndum. Samkvæmt UNICEF voru um 650 milljónir kvenna og stúlkna um allan heim gefnar í hjónaband fyrir 18 ára aldur.
Daniella Nordhagen hlaut Jenteprisen-verðlaunin 2026 fyrir baráttu sína gegn nauðungarhjónaböndum. Samkvæmt UNICEF voru um 650 milljónir kvenna og stúlkna um allan heim gefnar í hjónaband fyrir 18 ára aldur. Mynd: einkasafn.

En hún gerir sér einnig grein fyrir því að ekki er hægt að ætlast til þess að kennarar ráði einir við allar aðstæður. Hún vill að skólar hafi sérhæft fagfólk sem er þjálfað til að takast á við þessi mál. Hún telur einnig að starfsfólk með ólíkan menningarbakgrunn geti hjálpað börnum að finna að þau séu skilin.

„Þegar ég var ung hugsaði ég alltaf um konu eða karl sem gæti skilið menningu mína,“ segir hún. „Það er mikilvægt að börn hafi einhvern sem þau geta talað við.“

Umfram allt þurfa börn að vita hvert þau geta leitað og hverjum þau geta treyst. Þau þurfa fullorðna sem eru reiðubúnir að hlusta, þekkja merkin og taka áhyggjur þeirra alvarlega.

Önnur framtíð fyrir hennar eigin börn

Móðurhlutverkið gaf Nordhagen nýja sýn á æsku hennar og á þá fullorðnu sem áttu að vernda hana. Í dag er hún gift af fúsum og frjálsum vilja og hefur byggt upp fjölskyldulíf á eigin forsendum. Hún lítur á frelsið til að taka ákvarðanir um sambönd, menntun og daglegt líf sem eitthvað dýrmætt.

Hún hefur kosið að fjarlægjast trúarlegan bakgrunn sinn og hefur takmörkuð samskipti við fjölskyldu sína.

„Eftir að ég varð móðir hugsaði ég: Ég get aldrei, aldrei leyft neinum að snerta börnin mín,“ segir hún.

Hún vill að dóttir hennar hafi frelsi til að velja sér maka og menntun sjálf og að bæði börnin hennar alist upp við það öryggi og þau tækifæri sem henni var neitað um.

„Ég vil að dóttir mín eigi líf þar sem hún getur valið sína eigin leið,“ segir hún.

Hún tekur virkan þátt í starfi skóla og leikskóla barna sinna, heldur sambandi við aðra foreldra og leggur sig fram um að vera til staðar í daglegu lífi þeirra.

„Þetta eru mjög einfaldir hlutir, en fyrir mig voru þetta hlutir sem voru ekki til í æsku minni,“ segir hún hugsi.

Teikningar ungra sýrlenskra flóttamanna um barnabrúðkaup.
Teikningar ungra sýrlenskra flóttamanna um barnabrúðkaup. Mynd: Russell Watkins/Department for International Development/
Creative Commons Attribution 2.0

Verðlaun – og ábyrgð til að tjá sig

Fyrir Nordhagen skiptir það miklu máli að hljóta Jenteprisen, verðlaun Plan International í Noregi, vegna þess að vandinn sem hún berst gegn er langt frá því að vera leystur. Í þakkarræðu sinni velti hún fyrir sér stúlkunni sem hún eitt sinn var og stúlkunum sem kunna að vera að hlusta á hana í dag.

„Ég hugsa um sjálfa mig sem 13 ára stúlku. Mig hefði aldrei órað fyrir því að ég myndi standa hér í dag,“ sagði hún. „Ég hugsa líka um allar stúlkurnar sem búa við stjórnun og ótta núna og sjá ef til vill enga leið út. Ég vona að þær fái að skapa sér þá framtíð sem þær óska sér, því það er það sem þær eiga skilið.“

Þetta gerist líka í Evrópu, þar á meðal í Noregi. Reynsla Nordhagen – að vera neydd í hjónaband aðeins 13 ára – gerir ómögulegt að líta fram hjá þeim veruleika. Aðstæðurnar geta verið ólíkar en afleiðingarnar eru þær sömu: barn missir frelsið til að ráða eigin framtíð. Til að binda enda á barnahjónabönd þarf því athygli og aðgerðir í hverju landi, þar á meðal innan okkar eigin samfélaga og stofnana.

Boðskapur Nordhagen er ekki sá að sérhver stúlka geti einfaldlega gengið í burtu. Hún veit hversu flókin sú ákvörðun getur verið og hversu mikið barn kann að óttast að missa með því að biðja um hjálp. Ábyrgðin má því aldrei hvíla á barninu einu. Fjölskyldur, skólar, yfirvöld og samfélög gegna öll hlutverki í að þekkja viðvörunarmerkin, hlusta og grípa til aðgerða.

Ein stúlka á þriggja sekúndna fresti. Á bak við hverja tölu er barn sem á skilið tíma til að vaxa úr grasi, læra, velja og sjá fyrir sér eigin framtíð. Nordhagen vonar að með því að tjá sig í dag þurfi færri stúlkur að segja sögu eins og hennar á morgun.