Alþjóðlegi alnæmisdagurinn. Búist er við að alþjóðleg fjármögnun í baráttunni gegn alnæmi minnki um 30–40% árið 2025 miðað við 2023. Þetta mun valda tafarlausum og alverlegum búsifjum fyrir heilbrigðisþjónustu í lág- og meðaltekjuríkjum. Alþjóðlegi alnæmisdagurinn er 1. desember.
Veröldin var nær því við árslok 2024 en nokkru sinni síðustu tvo áratugi að ná því takmarkið að binda enda á alnæmi sem lýðheilsuvá fyrir 2030. Nú hefur baráttan gegn alnæmi orðið fyrir meiri skakkaföllum en dæmi eru um í áratugi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Alnæmisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNAIDS) hefur gefið út í aðdraganda Alþjóðlega alnæmisdagsins 1.desember.
Skjótur og skyndilegur niðurskurður fjárveitinga til baráttu gegn HIV á alþjóðlegum vettvangi, auk afturfarar í mannréttindamálum, hefur haft miklar og skaðlegar afleiðingar.
Takist ekki að ná markmiðum, sem átti að ná fyrir 2030 í Alheims alnæmis-áætluninnni (Global AIDS Strategy) má búast við 3.3 milljónum nýrra HIV- tilfella frá 2025-2030.
Við árslok 2024 nutu 31.6 milljón af þeim 40.8 milljónum, sem lifa með HIV, lífsbjargandi meðferðar.
Baráttan skilaði árangri
HIV-varnir og meðferð, auk baráttu gegn félagslegum hindrunum, skiluðu þeim árangri að nýjum HIV-smitum fækkaði um 40% og dauðsföllum tengdum alnæmi fækkaði um 54% frá 2010 ti 2024.
„Fjárveitingakreppan hefur leitt í ljós hversu brothættur sá árangur var, sem við höfum barist svo hart fyrir,“ segir Winnie Byanyima forstjóri UNAIDS. „Að baki hverri tölu er fólk. Börn sem ekki hafa verið skimuð fyrir HIV eða fengið snemmbæra HIV greiningu. Ungar konur sem missa stuðning og samfélög sem eru svipt þjónustu og umönnun. Við megum ekki snúa við þeim bakinu. Við verðum að yfirstíga þessa röskun og ná að umbreyta alnæmis-viðbrögðum.”
Hvað er HIV og alnæmi?
HIV (e. human immunodeficiency virus) er veira sem leitt getur til alnæmis, segir á Heilsuveru. Veiran veldur fækkun á T-hjálparfrumum og brýtur þannig niður ónæmiskerfi líkamans. Þeir sem hafa sýkst af veirunni geta þróað með sér alnæmi
HIV veiran berst manna á milli við óvarin kynmök með HIV jákvæðum einstaklingi, sem ekki gengst undir meðferð, með HIV menguðum sprautum eða sprautunálum, við blóðgjöf með menguðu blóði og við fæðingu eða með brjóstamjólk HIV jákvæðrar móður sem ekki er nýtur meðferðar.
