A-Ö Efnisyfirlit

Djassinn er ský sem hunsar öll landamæri

Terence Blanchard blæs í trompett á alþjóðlegum degi djassins. MYND :UN/Devra Berkowitz
Terence Blanchard blæs í trompett á alþjóðlegum degi djassins. MYND :UN/Devra Berkowitz

Alþjóðlegur dagur djassins. Haldið verður upp á Alþjóðlegan dag djassins 30.apríl með tíu viðburðum á Íslandi; í Reykjavík, Garðabæ og á Selfossi.

Margir af helstu djasstónlistarmönnum Íslands koma fram á tónleikunum, en dagskrána má finna hér. 

Haldið er upp á daginn með tónleikum og fræðsluátaki í rúmlega hundrað löndum. Gestjafi djassdagsins að þessu sinni er Chicago í Bandaríkjunum.

Djasspíanistinn Sullivan Fortner á tónleikum með tríói sínu í Village Vanguard í New York. Mynd: UN News/Jorge Rodriguez Diaz
Djasspíanistinn Sullivan Fortner á tónleikum með tríói sínu í Village Vanguard í New York. Mynd: UN News/Jorge Rodriguez Diaz

 Fimmtán ár eru liðin frá því UNESCO samþykkti að heiðra djasstónlistina með sérstökum Alþjóðlegum degi og varð 30.apríl fyrir valinu. Markmið samþykktar UNESCO var að   fagna mætti djassins sem afls fyrir friði, samræðu og gagnkvæmum skilningi. Þessum degi er ætlað að vera tækifæri til að efla virðingu – ekki aðeins fyrir tónlistinni, heldur einnig fyrir því framlagi sem hún getur veitt til að byggja upp samfélög án aðgreiningar.

„Í djassinum koma músíkantar saman og tjá það sem býr innra með þeim, óháð hörundslit eða þjóðerni, með orðum Julios Cortázar: Djassinn er ský sem hunsar öll landamæri,” segir djassbassaleikarinn og tónskáldið Tómas R. Einarsson í viðtali við UNRIC.

Djassdeginum er ætlað að vera alþjóðleg hreyfing sem virkjar fólk árlega í öllum heimsálfum með fræðslu, sýningum, samfélagsstarfi og umfjöllun í fjölmiðlum.

Djass örvar samræðu milli menningarheima og eflir ungt fólk úr jaðarsettum samfélögum.Mynd: UN
Djass örvar samræðu milli menningarheima og eflir ungt fólk úr jaðarsettum samfélögum.
Mynd: UN

Eins og Nina Simone sagði: „Djass er ekki bara tónlist, það er lífsstíll, það er lífsmáti, það er hugsunarháttur.“ Saga djassins er samofin leitinni að mannlegri reisn, lýðræði og borgararéttindum. Hann hefur veitt styrk í baráttunni gegn mismunun og kynþáttafordómum.

Chicago, sem er mikilvæg miðstöð jazztónlistar og fæðingarstaður margra frábærra tónlistarmanna þessarar líflegu tónlistarhefðar, er alþjóðleg gestgjafaborg alþjóðlega djassdagsins 2026. Chicago-búinn Herbie Hancock átti frumkvæðið að alþjóðlega degi djassins og skipuleggur viðburðinn í heimaborg sinni.

Tónleikunum er streymt í beinni útsendingu til milljóna áhorfenda um allan heim í gegnum UNTV, UNESCO, jazzday.com, Facebook, YouTube og aðra alþjóðlega fjölmiðla.

Alþjóðlegur dagur djassins 2026.
Alþjóðlegur dagur djassins 2026.

Í meira en öld hefur Chicago verið Mekka djassins. Strax á þriðja áratug síðustu aldar sigldu jazztónlistarmenn upp Mississippi-fljótið frá New Orleans og fundu að borgin var skapandi miðstöð. Djassgoðsagnir eins og Louis Armstrong, King Oliver og Jelly Roll Morton sköpuðu sér nafn í borginni og þróuðu „Chicago-stíl“ jazzins.

Þessi stíll fólst í áherslu á sólóa, spuna, stórsveitarútsetningar og hraðari, taktfastari hljóm, sem færði hljóðfæri eins og saxófóninn í fremstu röð. Í dag heldur Chicago áfram að fagna arfleifð sinni með Chicago Jazz Festival og á þekktum stöðum eins og Green Mill og Jazz Showcase, sem var stofnaður fyrir 75 árum.

„Djass er frelsi. Djass er Ameríka. Hann felur í sér mannúð. Og ást,“ sagði jazztónlistarmaðurinn Sullivan Fortner, þrefaldur Emmy-verðlaunahafi. „Svo lengi sem listamenn halda áfram að skapa hann, mun hann alltaf eiga erindi við þá tíma sem við lifum á.“

Hvers vegna Djass?

  • Djass rífur niður múra og skapar tækifæri til gagnkvæms skilnings og umburðarlyndis;
  • Djass er farvegur tjáningarfrelsis;
  • Djass er tákn einingar og friðar;
  • Djass dregur úr spennu milli einstaklinga, hópa og samfélaga;
  • Djass hvetur til listrænnar nýsköpunar, spuna, nýrra tjáningarforma og innlimunar hefðbundinna tónlistarforma í ný;
  • Djass örvar samræðu milli menningarheima og eflir ungt fólk úr jaðarsettum samfélögum.
  • Á stjörnutónleikunum í Chicago koma leikararnir Michael Douglas, Helen Mirren, Will Smith, Morgan Freeman og Jeremy Irons fram sérstaklega, en þar koma einnig fram alþjóðlegir listamenn frá öllum heimshornum, þar á meðal píanóleikararnir John Beasley, Robert Glasper og Helen Sung (Bandaríkjunum), Gonzalo Rubalcaba (Kúbu) og James Collier (Bretlandi); söngkonurnar Dee Dee Bridgewater og Lizz Wright (Bandaríkjunum); saxófónleikararnir Melissa Aldana (Chile), James Carter og Bobby Watson (Bandaríkjunum); bassaleikararnir Christian McBride og Marcus Miller (Bandaríkjunum); trommuleikararnir Terri Lyne Carrington (Bandaríkjunum) og Antonio Sanchez (Mexíkó); trompetleikararnir Terence Blanchard og Marquis Hill (Bandaríkjunum) og Tiger Okoshi (Japan); víbrafónleikarinn Joel Ross (Bandaríkjunum) og margir fleiri listamenn.

Heildarlista yfir viðburði á alþjóðlega jazzdeginum um allan heim má finna hér.

Sjá einnig hér og hér