A-Ö Efnisyfirlit

Farandfólk aldrei fjölmennara í heiminum

Lest frá Tashkent (Úsbekistan) kemur til Rússlands. Milljónir manna frá Mið-Asíu fara til Rússlands í atvinnuleit á hverju ári. Mynd: IOM / Elyor Nematov
Lest frá Tashkent (Úsbekistan) kemur til Rússlands. Milljónir manna frá Mið-Asíu fara til Rússlands í atvinnuleit á hverju ári. Mynd: IOM / Elyor Nematov

Farandfólk. Alþjóðlegur dagur farandfólks er haldinn 18.desember ár hvert. Fólksflutningar til Norðurlanda hafa aukist um nærri 50% á einum áratug. Árið 2023 voru 4.4 milljónir innflytjenda á svæðinu. Í Danmörku, Noregi og Íslandi er aðallega um fólk innan EES að ræða. Í Svíþjóð og Finnlandi eru fleiri, sem koma frá öðrum heimshlutum en Evrópu.

Markmið Alþjóðlegs dags farandfólks er að minna á þörfina fyrir öruggari, aðgengilegri og sanngjarnari fólsflutningakerfi í heiminum. Þema ársins er „Saga mín: menning og þróun.“ Því er ætlað að sýna hvernig hreyfanleiki manna drífur áfram hagvöxt, auðgar samfélög og stuðlar að því samfélög tengist, aðlagist og styðji hvert annað.

Starfsmaður Fólksflutningastofnunar Sameinuðu þjóðanna (IOM) sinnir fólki á Haítí. Mynd: IOM/Antoine Lemonnier
Starfsmaður Fólksflutningastofnunar Sameinuðu þjóðanna (IOM) sinnir fólki á Haítí. Mynd: IOM/Antoine Lemonnier

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna minnti í ávarpi á Alþjóðlegum degi farandfólks á þær miklu fórnir sem fólk hefði fært í leit að betra lífi utan heimalandsins.

Farandfólk fjölmennara en nokkru sinni

„Frá 2014 hafa nærri 70 þúsund manna látist eða týnst á landi eða sjó og líklegast er talan hærri. Landamæri eru sífellt að verða þéttari, og smyglarar sem stunda mansal þrífast sem aldrei fyrr. Konum og börnum er sérstaklega hætta búin,” segir António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í ávarpi sínu.

Fleiri en nokkru sinni búa nú í öðru landi en fæðingarlandi sínum. Fjöldi farandfólks í heiminum var um 304 milljónir og hafði sú tala nærri tvöfaldast frá 1990 samkvæmt tölum frá Mannfjöldaskrifstofu Efnahags- og félagsmáladeildar Sameinuðu þjóðanna.

Alþjóðlegt farandfólk er nú 3.7% af íbúafjölda heims en var 2.9% 1990. Konur eru rétt innan við helmingur.

Breyta þarf frásögninni

Flestir kjósa að flytja landa á mili, en aðrir flytja af nauðsyn. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNCHR) telur að við árslok 2024 hafi verið 43.7 milljónir flóttamanna í heiminum, þar á meðal 6 milljónir palestínskra flóttamanna, auk 8 milljóna hælisleitenda.

„Á alþjóðlegum degi farandfólks skulum við taka höndum saman um réttindi hvers einasta þeirra. Fólksflutningar ættu að fara fram með reisn og á öruggan hátt,” segir Guterres í ávarpi sínu. Við getum og við verðum að leysa úr læðingi afl fólksflutninga til að efla sjálbæra þróun og byggja upp þolbetri samfélög. Fyrsta skrefið í þá átt er að breyta þeirri frásögn sem afmennskar farandfólk og segja þess í stað sögur um samstöðu.”

 Fánar Norðurlanda við hún í Færeyjum. Mynd: Norden.org/Gwenaël Akira Helmsdal Carré
Fánar Norðurlanda við hún í Færeyjum. Mynd: Norden.org/Gwenaël Akira Helmsdal Carré

Fólksflutningar á Norðurlöndum

Fólksflutningar til Norðurlanda hafa aukist um nærri 50% á einum áratug. Árið 2023 voru 4.4 milljónir innflytjenda á svæðinu. Er þá bæði taldir þeir sem njóta frjálsra fólksflutninga innan EES svæðisins og allir aðrir. Í Danmörku, Noregi og Íslandi er aðallega um fólk, sem flyst innan EES að ræða. Í SVíþjóð og Finnlandi eru miklu fleiri, sem koma frá öðrum heimshlutum en Evrópu í krafti fjölskyldusameininga og beiðnum um hæli að því er fram kemur í skýrslu OECD.

Norðurlöndin hafa náð góðum árangri í aðlögun innflytjenda, sem byggir á alhliða velferðarkerfum, markvissri virkri vinnumarkaðsstefnu og alhliða félagslegum stofnunum. Atvinnuþátttaka innflytjenda er há miðað við alþjóðlega staðla og hefur farið hækkandi. Noregur og Ísland koma sérstaklega vel út í því samhengi.

Kynjamunur er lítill í vinnumarkaðsþátttöku. Slíkt endurspeglar vinnumarkaðsþátttöku kynjanna almenn í þessum ríkjum, en einnig vega fjölskyldu- barnavistunarstefna þungt. Enn er þátttaka í fullorðinsfræðslu og þjálfun sú mesta innan OECD.

Sjá nánar um fólksflutninga til Norðurlanda hér og um Alþjóðlegan dag farandfólks hér.