Alþjóðlegur dagur fatlaðs fólks.
ÖBÍ réttindasamtök veittu tveimur leikverkum Hvatningarverðlaunin á Grand hótel á alþjóðlegum degi fatlaðs fólks 3.desember. Handhafar verðlaunanna í ár eru Fúsi, aldur og fyrri störf og Taktu flugið, beibí.
Halla Tómasdóttir forseti afhenti verðlaunin og minnti í ávarpi sínu á mikilvægi kærleikans. Hún sagðist jafnframt vonast til þess að næsta ríkisstjórn haldi málaflokki fatlaðs fólks á lofti.
„Eigum við ekki að vona að hver sem ríkisstjórnin verður eftir þessar kosningar, að þá verði það ríkisstjórn sem setji þau mál [málefni fatlaðs fólks] á dagskrá með enn sterkari hætti,“ sagði forsetinn.
Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ, óskaði öllum hinum tilnefndu til hamingju og þakkaði þeim fyrir raddir sínar og styrk að þvi er fram kemur á heimasíðu ÖBÍ.
Samfélagið verður að leggja okkur lið í inngildingu
„Í okkar réttindabaráttu dugir ekki bara til að fatlað fólk standi eitt í henni heldur verður samfélagið að leggja okkur lið, ekki bara þegar það hentar vel, heldur alltaf. Samfélagið verður að leggja okkur lið í inngildingunni alls staðar. Tilnefnd eru svo sannarlega að gera það í sínum víðasta skilningi,“ sagði Alma Ýr.
Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson, oftast kallaður Fúsi, veitti verðlaunum viðtöku en hann er annar höfunda leikverksins, ásamt Agnari Jóni Egilssyni. Þá tók Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir á móti verðlaunum, en hún er höfundur Taktu flugið, beibí.
Einnig voru tilnefnd Dagbjört Andrésdóttir og leikskólinn Múlaborg. Sjá nánar hér.
Alþjóðlegur dagur fatlaðs fólks er haldinn ár hvert 3.desember.
