Sjávargrös þekja aðeins 0.1% af botni sjávar en gegnir afar þýðingarmiklu hlutverki. Þau hýsa allt að 18% af kolefni hafsins og eru því öflug náttúruleg lausn til að takast á við loftslagsbreygingar. Alþjóðlegur dagur sjávargrasa er haldinn 1.mars.
Sjávargrös eru blómstrandi plöntur á hafsbotni. Þau eru á grunnsvæði í mörgum heimshlutum frá hitabeltinu til Norðurslóða. Sjávargrös mynda víðfeðm neðansjávarengi og skapa þannig flókin, mjög afkastamikil og líffræðilega auðug búsvæði.
Þrátt fyrir mikilvægt framlag sitt til sjálfbærrar þróunar og aðlögunar að loftslagsbreytingum og til að draga úr þeim er þessi hornsteinn líffræðilegs fjölbreytileika sjávar í hættu.
Í hættu
Sjávargrösum hefur fækkað um allan heim frá fjórða áratug síðustu aldar og nú er áætlað að 7% tapist á hverju ári um allan heim. Nýlega kom fram að 21% sjávargrasa eru flokkuð sem nærri útrýmingarhættu, viðkvæmar og eða í útrýmingarhættu.
Álag frá strandþróun, mengun, þar á meðal frárennsli frá landi, loftslagsbreytingum, dýpkun og óreglulegri fiskveiði og bátastarfsemi eru lykilþættir hnignunar þörunga og tengdra vistkerfa.
Sjávargrös veita þúsundum tegunda skjól og fæðu, þar á meðal fiskum, skelfiski, sækýr, sæhestum og sæskjaldbökum. Þau eru einnig þýðingarmikil uppeldissvæði fyrir rúmlega 20% af 25 stærstu fiskveiðistofnum heims. Sjávargrös bæta vatnsgæði með því að sía, greiða fyrir hringrás og hýsa næringarefni og mengandi efni.
Þau vinna gegn súrnun sjávar og stuðla að seiglu viðkvæmustu vistkerfa og tegunda, svo sem kóralla Sægrasbreiður eru eitt útbreiddasta búsvæði við strendur jarðar. Þær finnast í 159 löndum í 6 heimsálfum. En sjávargrasi hefur hnignað á heimsvísu frá því um 1930. 7% af þessum mikilvægu búsvæðum sjávar tapast árlega um allan heim.
Í hnotskurn:
- Sægrasbreiður er að finna í 159 löndum í sex heimsálfum og þekja yfir 300 þúsund ferkílómetra.
- Næstum 30% sjávargrasabreiðna hafa tapast frá síðari hluta nítjándu aldar og að minnsta kosti 22 af 72 tegundum þangsá í heiminum eru í hnignun.
- Sjávargrös hýsa allt að 18% af kolefnismagni hafsins í heiminum.
- Sjá einnig hér.
