A-Ö Efnisyfirlit

Alþjóðlegur dagur stúlkna í upplýsingatækni: Nauðsynlegt að skapa fyrirmyndir

Frá hvatningardögum Vertonet.
Stjórn Vertonet - Frá vinstri: Diana Bobocu, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, Elísabet Ósk Stefánsdóttir (ég), Anna Kristín Agnarsdóttir, Indíana Líf Bergsteinsdóttir, Diljá Þorkelsdóttir og síðan vantar á myndina Karítas Ólafsdóttir.

Alþjóðlegur dagur stúlkna í upplýsingatækni

Konur eru aðeins fjórðungur starfsfólks í upplýsingatækni og hlutfall kvenna í tölvunarfræði í Háskóla Íslands er litlu hærra. Rýr hlutur kvenna í vísinda og tæknigreinum er alþjóðlegt vandamál. Alþjóðlegur dagur stúlkna í upplýsingatækni er 24.apríl.

270 karlar eru nú innritaðir í tölvunarfræði og 76 konur að sögn Háskóla Íslands. Hlutfall kvenna er því um 28%. 76 karlar eru svo innritaðir í hugbúnaðarverkfræði en 35 konur og er því kynjahlutfallið heldur jafnara þar eða 56-46% körlum í vil. Hins vegar má benda á að konur hafa verið 60-70% stúdenta við Háskóla Íslands undanfarin ár. Þær eru líka í meirihluta í ýmsum raunvísindagreinum á borð við líffræði og jarðfræði.

Kona slær inn á lyklaborð tölvu. Kynjahalli er í upplýsingatækni á Íslandi eins og víðar.
Kynjahalli er í upplýsingatækni á Íslandi eins og víðar. Mynd: Vardan Papikyan -Unsplash

Vantar 9 þúsund sérfæðinga

Vertonet, samtök kvenna og kvára í upplýsingatækni á Íslandi, hafa frá því árið 2022 staðið fyrir átaksverkefni ásamt menntastofnunum, fyrirtækjum og hagsmunasamtökum í upplýsingatækni um að auka nýliðun kvenna í greininni.

Elísabet Ósk Stefánsdóttir formaður Vertonets segir í viðtali að það þurfi að bregðast við á öllum stigum – frá grunnskóla til atvinnulífsins. „Það er lykilatriði að viðurkenna vandann og vinna í að bæta hann, því við og atvinnulífið græðum öll á því,” segir Elísabet.

Talið er að þörf sé á 9 þúsund sérfræðingum í hugverkaiðnaði á Íslandi á næstu fimm árum. Þar sem konur eru yfirleitt ríflega fjórðungur af konum í tækni á Íslandi, telur Vetronet að það liggi beint við að mæta þörfinni með fjölgun kvenna í þessum greinum. 

Elísabet Ósk Stefánsdóttir formaður Vertonets
Elísabet Ósk Stefánsdóttir formaður Vertonets

Þarf að rjúfa staðalímyndir

„Það þarf að skapa fyrirmyndir, fræða, rjúfa staðalímyndir og tryggja að konur komist inn í tæknigeirann og að skapa umhverfi sem þær endast í,“ segir Elísabet.

„Vandamálið á að hluta til rót sína að rekja til þess þegar við erum yngri og lítið eða ekkert í okkar umhverfi ýtir okkur í átt að tæknistörfum eða tæknimenntun. Ég get fullyrt það að það er stór hluti kvenna sem hefur áhuga en við lítum ekki á að þetta sé fyrir okkur og þá liggur ekki augum uppi að fara þessa leið,” segir Elísabet.

Upplýsingatækni: Alþjóðlegt vandamál

Kynjahallinn á Íslandi er ekkert einsdæmi. Til samanburðar má nefna að hlutfall kvenna sem útskrifast úr upplýsingatæknigreinum er aðeins 15% í Noregi en 30% í Svíþjóð.  Þá er hlutfall kvenna sem útskrifast úr námi í upplýsingatækni í Bandaríkjunum um 25%. Í lok árs 2023 voru konur 35% af vinnuafli í tæknigeiranum og í svokölluðum STEM-greinum (vísindum, tækni, verkfræði og stærðfræði þar í landi samkvæmt tölum Alþjóðabankans. Hlutfall kvenna er hins vegar 47% á vinnumarkaði vestra.

Kona við tölvu
Alþjóðlegur dagur stúlkna í upplýsingatækni.Mynd: Kelly Sikkema – Unsplash

Lituð af fyrri reynslu

Elísabet telur mikilvægt að glæða áhuga stelpna snemma.

„Áhugi getur komið í bæði grunnskóla og menntaskóla og þá er mikilvægt að veita öllum jöfn tækifæri og að fólkið í kringum okkur taki ekki ákvarðanir út frá staðalímyndum um hvað við höfum áhuga á. Þegar er komið að því að velja háskólanám eða annað nám, þá erum við auðvitað lituð af fyrri reynslu og sjóndeildarhringurinn aðeins eins breiður og þekking okkar á þessum geira. Þess vegna er mikilvægt að kynna tækni og tæknistörf fyrir stelpum og konum sem mun óhjákvæmilega kveikja áhuga hjá þeim sem síðar kjósa að fara þá leið,” segir hún.

Alþjóðlegur dagur stúlkna í upplýsingatækni
Alþjóðlegur dagur stúlkna í upplýsingatækni

Að haldast í störfum

Eins og fram kemur í viðtali við tvær ungar konur í upplýsingatæknigeiranum þá sakna konur ekki aðeins fleiri kynsystra í náminu heldur einnig á vinnustöðum.

„Þegar konur fara síðan út á vinnumarkaðinn, tekur önnur hindrun við, að haldast í tæknigeiranum og í störfum þar sem við erum jafnvel einu konurnar eða í miklum minnihluta og umhverfið mögulega ekki fjölbreytt né inngildandi.”

Alþjóðlegur dagur stúlkna í upplýsingatækni, sjá nánar hér.