A-Ö Efnisyfirlit

Alþjóðlegur dagur sykursýki: áhrif á öll æviskeið

830 milljónir manna lifa með sykursýki. Það er meira en samanlagður íbúafjöldi Evrópusambandsins og Bandaríkjanna.
830 milljónir manna lifa með sykursýki. Það er meira en samanlagður íbúafjöldi Evrópusambandsins og Bandaríkjanna.

Um 830 milljónir jarðarbúa með sykursýki. Þetta er meira en samanlagður fjöldi íbúa Evrópusambandsins og Bandaríkjanna. Meirihlutinn er lág -og meðaltekjuríkjum. Rúmlega helmingur sykursjúkra nýtur engrar meðferðar. Hvort tveggja fjöldi fólks með sykursýki, og þeirra í þeim hópi sem ekki nýtur meðferðar, hefur aukist stöðugt undanfarna áratugi. Alþjóðlegur dagur sykursýki er 14.nóvember.

Alþjóðlegur dagur sykursýki: á öllum æviskeiðum

Sykursýki snertir fólk á öllum æviskeiðum, hvort heldur sem er í barnæsku, á barneignaárum, á vinnualdri eða á efri árum. Þema Alþjóðlegs dags sykursýki 2025 á vegum Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) er Sykursýki á öllum æviskeiðum („Diabetes across life stages”).

Gera má ráð fyrir að tuttugu og þrjú þúsund manns á Íslandi lifi með sykursýki eða 6.6% Mynd: International diabetes federation
Gera má ráð fyrir að tuttugu og þrjú þúsund manns á Íslandi lifi með sykursýki eða 6.6% Mynd: International diabetes federation

Allir sem lifa með sykursýki ættu að hafa aðgang að samþættri umönnun, stuðnings-umhverfi og stefnumótun, sem miðar að því að efla heilbrigði, reisn og sjálfstæði.

Tákn sykursýki

 Mismunandi tegundir

Tegundir sykursýki eru:

Sykursýki 1 er insúlínháð sykursýki, sem er algengari hjá börnum og ungu fólki. Meðferðin er regluleg insúlín gjöf oft með sprautum.

Sykursýki 2 orsakast þegar líkaminn framleiðir ekki nægilega mikið af insúlíni eða þegar hann hefur misst getu sína til að nýta það insúlín sem framleitt er. Þessi sjúkdómur er að mestu áunnið heilsufarsvandamál sem fyrirfinnst í flestum tilfellum í eldra fólki, en er þó farinn að finnast hjá yngri kynslóðum með hækkandi tíðni offitu í heiminum, segir í grein á doktor.is.

Þá er ógetið meðgöngusykursýki, þegar of hár blóðsykur greinist fyrst á meðgöngu.

Alþjóðlegur dagur sykursýki er 14.nóvember
Alþjóðlegur dagur sykursýki er 14.nóvember

Sykursýki á Íslandi

Tuttugu og þrjú þúsund manns á Íslandi lifa með sykursýki eða 6.6% landsmanna. Þetta er álíka fjöldi og íbúar Reykjanesbæjar, þriðja stærsta bæjar Íslands.

Talið er að yfir 80 þúsund Íslendingar séu með hækkaðan blóðsykur án þess að teljast með sykursýki 2. Á hverju ári þróa um 5-10% þess hóps sem telst á forstig sjúkdómsins með sér sykursýki og bætast í hóp þeirra 23 þúsund landsmanna  sem talið er að séu með sykursýki, að því er fram kemur í Læknablaðinu. 

Aðeins helmingur þeirra sem búa við sykursýki njóta meðhöndlunar.
Aðeins helmingur þeirra sem búa við sykursýki njóta meðhöndlunar. Mynd: isens usa/ Unsplash

Sykursýki í Evrópu

Áætlað er að útbreiðsla sykursýki (9,8%) og fjöldi fólks með sykursýki (66 milljónir) í Evrópu muni aukast um 10% fyrir árið 2050, samkvæmt Alþjóðasambandi sykursýki. Evrópa er með hæst hlutfall fólks með sykursýki af tegund 1 (2,7 milljónir), og 15% þeirra eru yngri en 20 ára (419.000). Árið 2024 var áætlað að 193 milljarðar Bandaríkjadala hafi verið eytt í sykursýki í Evrópu, sem samsvarar 19% af heildarútgjöldum um allan heim. Svæðið hefur næsthæstan meðalkostnað á mann með sykursýki (2.951 Bandaríkjadalir).