Grænland. Amina Mohammed vara-aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna skoraði á ríki heims að slá skjaldborg um sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Í ræðu í danska þinginu sagði hún að þeim bæri að vernda reglubundna skipan heimsmála ellegar gjalda það dýru verði í ræðu í danska þinginu í gær. „Annað hvort rísum við upp til stuðnings reglubundinni heimsskipan eða gjöldum það dýru verði að sitja þegjandi hjá. Í gær var það Venesúela, á morgun gæti það verið Grænland.“
Hún sagði að sáttmálinnn, stofnskrá samtakanna væri „siðferðilegur áttaviti okkar. Mohammed hvatti til endurnýjaðra skuldbindinga í fjölþjóðasamskiptum á grundvelli samstöðu, alþjóðalaga og mannlegrar reisnar.
Hún lagði áherslu á nauðsyn þess að fjárfesta í friði. Öryggisráð og allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefðu gert það í ályktunum um fullveldi og landamæri Úkraínu og tveggja ríkja lausn á deilum Ísraela og Palestínumanna.
Venesúela í gær – Grænland á morgun?
Mohammed sagði að „skaðleg fortíðarfíkn“ eftir þeirri tíð þegar lög væri túlkuð eftir geðþótta og dutlungum hins sterka,“ græfi nú undan alþjóðlegri samvinnu.
Hún minnti á orð António Guterres aðalframkvæmdastjóra sem minnti nýlega á að sáttmáli Sameinuðu þjóðanna væri ekki matseðill – à la carte - og öllum ríkjum bæri að virða ákvæði hans.
Hún minnti á að smáríki ættu mest undir því ef hinir veikustu nytu ekki verndar reglna, „væri engum skjól í þeim.” Hún sagði að hættan væri sú að á eftir „Venesúela í gær“ kæmi „Grænland á morgun.
Davos: bergmálshellir
„Í þessari viku í Davos sáum við hina ríku verða ríkari – gróði safnast á hendur hinna fáu. Á síðasta ári jókst auður milljarðamæringa um tvær milljónir milljón dala. Á sama tíma á fátækasti helmingur mannkyns aðeins 2% veraldarauðsins.”
Vara-aðalframkvæmdastjórinn sagði að þörf væri á að „endurræsa Sameinuðu þjóðirnar til að viðhalda fjölþjóðasamskiptum.”
Hún hvatti ríki heims, þar á meðal Danmörku, til að „taka forystuna og skuldbinda sig til umbóta innan Sameinuðu þjóðanna með það fyrir augum að hrinda loforðum sáttmálans í framkvæmd í samræmi við raunveruleika dagsins í dag.”
Sjá einnig hér.
