Alþjóðlegur baráttudagur til höfuðs andúð á Íslam.
Nærri einn af hverjum tveimur múslimum (47%) sætir mismunun í daglegu lífi í nokkrum Evrópuríkjum. Hlutfallið var minna eða 39% árið 2016. Af þeim 13 ríkjum sem voru í nýlegu úrtaki könnunar á vegum Evrópusambandsins var hæst hlutfall múslima, sem sættu mismunun, í Austurríki (71%), Þýskalandi (68%) og Finnlandi (63%). Alþjóðlegur baráttudagur til höfuðs andúð á Íslam er haldinn 14.mars ár hvert.
Stofnun Evrópusambandsins um grundvallarréttindi (FRA) gerði könnun á meðal nærri 10 þúsund múslima í þrettán ESB ríkjum á árunum 2021 og 2022. Niðurstöðurnar hafa birst í nýrri skýrslu (“Being Muslim in the EU – Experiences of Muslims“).
Múslimum fjölgað í ESB
Múslimar eru næst fjölmennasti trúarhópurinn innan ESB. Þeir eru hins vegar ólíkir innbyrðis hvað varðar uppruna, lífsskoðanir, tungumál, stjórnmálaskoðanir og menningu. Nýjustu tiltækar tölur úr könnun Pew rannsóknamiðstöðvarinnar frá 2016 benda til að um 26 milljónir múslima búi í Evrópusambandsríkjunum. Það er um 5% íbúafjöldans, en þeir eru afar misfjölmennir eftir ríkjum. Helsta ástæða fjölgunar múslima er aukinn fjöldi flóttamanna frá átökum í ríkjum á borð við Afganistan, Írak og Sýrland.
Mismunun í þagnargildi
„Við stöndum frammi fyrir aukinni mismunun gagnvart múslimum í Evrópu,“ segir Sirpa Rautio forstjóri Stofnunar Evrópusambandsins um grundvallarréttindi (FRA). „Átökunum í Miðausturlöndum er um að kenna og afmennskandi orðræðu um múslima í allri álfunni.“
Rannsóknir FRA undanfarin 15 ár sýna fram á að atvik þar sem múslimum er mismunað eru sjaldnast tilkynnt. Flest atvik fara því framhjá þeim stofnunum sem ber lagalega skylda til að hjálpa fórnarlömbunum. Aðeins 6 % svarenda, sem töldu sig hafa sætt mismunun, höfðu tilkynnt eða kvartað yfir atvikunum.
Frelsi allra er í veði
Í ávarpi á alþjóðlegum baráttudegi til höfuðs andúð á Íslam segir António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna að þegar ráðist er á einn tiltekinn hóp séu réttindi og frelsi allra í hættu.
„Við stöndum framm fyrir skelfilegri aukningu ofstækis í garð múslima,“ segir Guterres. „Nefna má mismunun á grundvelli kynþáttar og stefnumál sem byggja á mismunun; brjóta mannréttindi og grafa undan sæmd. Stundum fylgir slíku ofbeldi gegn einstaklingum og bænahúsum. Þetta er hluti stærri flóðbylgju umburðarleysis, öfgastefna og árása á trúarhópa og veikburða hópa.“
Gripið hefur verið til ýmissa aðgerða til að berjast gegn múslimahatri af hálfu Sameinuðu þjóðanna. Alþjóðlegur baráttudagur til höfuðs andúð á Íslam er haldinn 14.mars ár hvert. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun um að aðalframkvæmdastjórinn skuli koma á fót embætti sérstaks erindra baráttunar geng hatri á Íslam.
Þess má geta að nú stendur yfir Ramadan, föstumánuður múslima.
