Áramótaávarp. Hernaðarútgjöld. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna harmar hamslausa aukningu hernaðarútgjalda í áramótaávarpi sínu.
Í ávarpinu segir aðalframkvæmdastjórinn að veraldarleiðtogar verði að „laga forgangsröðunina” og fjárfesta fremur í þróun en eyðileggingu.
Átök snerta fjórðung mannkyns
„Nú þegar nýtt ár tekur við stendur heimurinn á krossgötum. Við erum umlukin stjórnleysi og óvissu,” segir Guterres í áramótaávarpi sínu 2026. „Fólk hvarvetna spyr sig: hlusta leiðtogarnir? Eru þeir reiðubúnir til aðgerða?”
Mannlegar þjáningar hafa einkennt árið 2025. Rúmlega fjórðungur mannkyns býr á svæðum, sem orðið hafa fyrir búsifjum af völdum átaka. Meir en 200 milljónir manna þurfa á mannúðaraðstoð að halda. Nærri 120 milljónir hafa hrakist frá heimilum sínum sökum átaka, kreppu, náttúruhamfara eða ofsókna.
Spáð tvöfaldri aukningu hernaðarútgjalda
„Nú þegar við kveðjum róstusamt ár, talar ein staðreynd skýru máli: Hernaðarútgjöld í heiminum eru komin í 2.7 milljón milljónir Bandaríkjadala og hafa aukist um nálega 10%.”
Mannúðarkreppur í heiminum dýpka, en á sama tíma er því spáð að hernaðarútgjöld meir en tvöfaldist úr 2.7 milljón milljónum 2024 í hvorki meira né minna en 6.6 milljón milljónir Bandaríkjadala, ef svo heldur fram sem horfir. Það er þrettán sinnum meira en öll þróunaraðstoð í heiminum samanlögð og jafnast á við alla þjóðarframleiðslu Afríku.

„Á nýja árinu skulum við heita því að laga forgangsröðina. Til að skapa öruggari heim ber að byrja á því að fjárfesta meira í að berjast gegn fátækt og minna í að heyja stríð. Friður skyldi ríkja,” segir Guterres.
Í september 2025 kynnti aðalframkvæmdastjórinn skýrslu sem hann tók saman að beiðni aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna. Þar var sýnt fram á ginnungagap á milli hernaðarútgjalda og framlaga til sjálfbærrar þróunar og friðar.

Þar kom meðal annars fram:
- Einungis þyrfti að verja 4% hernaðarútgjalda heimsins á ári til að binda enda á hungur í heiminum fyrir 2030.
- Rétt rúmlega 10% henaðarútgjalda myndu duga til að bólusetja að fullu hvert einasta barn í heiminum.
- Það myndi kosta 5 milljón milljónir dala að kosta 12 ára gæða-skólagöngu hvers einasta barns í tekjulægri ríkjum veraldar.
- Þúsund milljón dollara fjárfesting í hernaði skapar 11 þúsund og 200 störf. Sama upphæð fjárfest í menntun skapar 26 þúsund og 7 hundruð störf, 17 þúsund og tvö hundruð í heilsugæslu og 16 þúsund og 8 hundruð í hreinni orku.
- Endurfjárfesting 15% heimsútgjalda til hermála myndu nægja til að fjármagna loftslagsaðlögun þróunarríkja.
- Hver dalur sem varið er til hermála leysir úr læðingi tvöfalt meiri losun gróðurhúsalofttegunda en fjárfesting í borgaralegum verkefnum.
Rísum upp í sameiningu
„Það er ljóst að veröldin býr yfir þeim úrræðum sem þarf til að bæta líf, græða plánetuna og tryggja framtíð friðar og réttlætis,“ segir Guterres. „Árið 2026 hvet ég leiðtoga hvarvetna til að takast af alvöru á við vandann. Látið fólkið og plánetuna vera í fyrirrúmi en snúið baki við þjáningu.”
„Á þessu nýja ári skulum við rísa upp í sameiningu. Fyrir réttlæti, Fyrir mannkyninu. Fyrir friði.”

